Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur aftur beint athygli sinni að tollum sem hann beitir nú til að þrýsta á nýja tollasamninga. Hefur hann meðal annars tilkynnt forsetum Japan og Suður-Kóreu að þjóðir þeirra muni fá á sig 25% tolla frá og með 1. ágúst.
Hann hefur svo sent sambærileg erindi til Malasíu, Kasakstan, Suður-Afríku, Mjanmar, Túnis, Bosníu og Hersegóvínu, Indónesíu, Bangladesh, Serbíu, Kambódíu, Tælands og Laos þar sem hann tilkynnir leiðtogum þessara þjóða um allt að 40 prósent tolla.
Í bréfunum gagnrýnir Trump viðskiptahalla þjóðanna við Bandaríkin, eða með öðrum orðum að Bandaríkjamenn séu að versla meira frá þessum þjóðum en þær versla frá Bandaríkjunum. Trump tók einnig fram að tollarnir séu jafnframt viðbrögð við öðrum stefnum þessara þjóða sem hann telur hafa neikvæð áhrif á viðskipti við Bandaríkin. Eins hvetur hann þjóðarleiðtogana til að framleiða vörur innan Bandaríkjanna til að losna við tolla.
Áður hafði Trump kynnt víðtæka og umfangsmikla tolla á nánast öll viðskiptaríki Bandaríkjanna, en hann gaf þjóðunum síðar frest til 9. júlí til að gera viðskiptasamninga við Bandaríkin. Þessi frestur rennur út á miðvikudaginn.
Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, Karoline Leavitt, sagði þó í dag að Trump muni að líkindum framlengja frestinn út júlí.
Í öllum bréfunum sem Trump hefur nú sent til áðurnefndra þjóða hótar hann að hækka tolla enn frekar ef gripið er til mótaðgerða.