fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Smyglarnir hafa fundið ótrúlega aðferð til að smygla fólki

Pressan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 16:00

Flóttafólk. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áður fyrr földu smyglararnir sig í klettunum með fram Ermarsundi. Þeir blésu síðan gúmmíbátana upp og létu förufólk og hælisleitendur bara þá niður að ströndinni og sigla síðan af stað yfir til Bretlands.

Þetta skilaði þeim miklum peningum en var um leið áhættusamt því áður en þeir komust út á Ermarsund handtók franska lögreglan rúmlega helminginn.

En nú hafa smyglararnir fundið nýja aðferð. Þeir blása gúmmíbátana upp í margra kílómetra fjarlægð frá þeim svæðum þar sem lögreglan er til staðar og sigla síðan hratt með fram ströndinni, svona eins og leigubíll. Þeir taka síðan förufólk og hælisleitendur upp á leiðinni.

Fólkið bíður úti í sjónum, með vatn upp að mitti.

Snilldin að baki þessu er að samkvæmt frönskum lögum má lögreglan ekki stöðva för gúmmíbátanna þegar þeir eru komnir út á sjó. Lögreglan má aðeins grípa inn í á meðan bátarnir eru enn á þurru landi eða ef einhver er að drukkna.

Þessi nýja aðferð hefur orðið til þess að algjör sprenging hefur orðið á fjölda þeirra sem komast ólöglega yfir Ermarsund til Bretlands. Í síðust viku komu 1.500 manns í þessum litlu „leigubátum“.  Það sem af er ári hafa rúmlega 16.000 manns komist yfir Ermarsund til Bretlands með aðstoð smyglara.

Allt síðasta ár komust 37.000 manns yfir Ermarsund og var það mikil aukning frá árunum á undan að sögn BBC.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna