Þessi aðvörun kemur ekki til af góðu því Yvonne lést úr hinum skelfilega sjúkdómi hundaæði fjórum mánuðum eftir að hún var klóruð af flækingshundi á ferðalagi sínu í Marokkó.
Það var í febrúar sem hin 59 ára amma var klóruð lítillega af hundi. Hún spáði ekki meira í því en nokkrum mánuðum eftir heimkomuna fór á veikindum hjá Yvonne. Fyrst var það stjórnlaus höfuðverkur en áður en yfir lauk gat hún ekki gengið, talað, sofið eða kyngt.
Töldu læknar næsta víst að hún hefði smitast af hundaæði á ferðalagi sínu í Marokkó og þá að öllum líkindum eftir að hún var klóruð.
„Við bjuggumst aldrei við því að eitthvað þessu líkt gæti gerst en við biðlum til fólks að taka því alvarlega ef það er bitið eða klórað af flækingsdýrum,“ segir dóttir hennar, Robyn Thomson, í samtali við Independent.
Hún segir að fjölskyldan hafi ákveðið að opna sig um hið voveiflega dauðsfall til að koma í veg fyrir að aðrir lendi í svipaðri stöðu. „Jafnvel smá klór eða bit frá sýktu dýri getur borið sjúkdóminn,“ segir Robyn sem hvetur fólk til að fara strax til læknis ef þetta gerist.
Hundaæði banvænn sjúkdómur þegar einkenni byrja að koma fram. Einkenni byrja vanalega að koma fram nokkrum vikum eftir útsetningu og mjög mikilvægt að fá bóluefni við veirunni innan nokkurra klukkustunda frá biti eða klóri.
Á Vísindavefnum kemur fram að sjúkdómurinn lýsi sér með krampaflogum, einkum í vöðvum sem stjórna öndun og kyngingu. „Það einkennilega er að kramparnir koma fram eða versna mikið við tilraunir til að drekka vatn, við að sjá vatn, heyra vatnshljóð eða heyra talað um vatn,“ segir í greininni og bætt við að af þessum ástæðum hafi sjúkdómurinn stundum verið kallaður vatnsfælni.
„Nafnið hundaæði stafar af því að sjúkdómurinn leggst oft á hunda og gerir þá hrædda, órólega, slefandi og árásargjarna. Hægt er að bólusetja við hundaæði en þeir sem veikjast af sjúkdómnum deyja flestir eftir um viku veikindi með miklum þjáningum,“ segir á Vísindavefnum.