
Rapparinn D4vd mun nú loksins vera kominn með stöðu sakbornings í rannsókn á morði unglingsstúlku sem fannst látin í skotti Teslu-bifreiðar hans. Samkvæmt frétt ABC News um málið hefur rapparinn ekki verið samstarfsfús í samskiptum sínum við lögreglu vegna málsins.
Líkamsleifar stúlkunnar, hinnar 14 ára gömlu Celeste Rivas Hernandez, fundust í september eftir að vegfarendur tilkynntu lögreglu um vonda lykt frá Teslu-bifreið. Þegar lögregla opnaði skottið kom strax á daginn að stúlkan hafði verið látin í töluverðan tíma og að andlátið hafi líklega ekki borið að með náttúrulegum hætti enda hafði líkið verið hlutað niður. Vegna rotnunar og aflimunar hefur verið erfitt fyrir réttarmeinafræðing að leiða í ljós hvað varð stúlkunni að aldurtila, en líklegt þykir að hún hafi látist í vor og legið mánuðum saman í skottinu.
Vinir rapparans hafa greint fjölmiðlum frá því að D4vd hafi átt í ástarsambandi við stúlkuna, en hún strauk af heimili fjölskyldu sinnar í fyrra, þá aðeins 13 ára gömul. Að sögn móður hennar átti hún kærasta að nafni David sem fjölskyldan hafði ekki hitt. Líklegt þykir að þarna sé um rapparann að ræða og að stúlkan hafi strokið til hans.
Til þessa hefur D4vd ekki verið handtekinn sem hefur vakið úlfúð enda þykir líklegt að jafnvel þó að rapparinn hafi ekki myrt stúlkuna þá sé hann sekur um að hafa átt í kynferðislegu sambandi við ólögráða barn.
Sjá einnig: Kennsl borin á rotnandi lík í yfirgefinni Teslu söngvarans – Ferilinn hefur borið hnekki