fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
Pressan

Frægt handrit eftir Galileo er falsað

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 24. ágúst 2022 20:30

Galileo Galilei.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tæplega eina öld hefur bókasafn Michigan háskólans verið með handrit í sinni vörslu sem talið var að væri eftir stjörnufræðinginn Galileo Galilei. Nú telur skólinn hins vegar að handritið sé falsað en sú skoðun byggist á innri rannsókn háskólans á því.

Skólinn tilkynnti í gær, þriðjudag, að handritið, sem er ein blaðsíða og þekkt sem „Galileo handritið“ hafi verið gert af Tobia Nicotra sem var vel þekktur falsari frá Ítalíu. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að falsa skjöl, sem áttu að vera eftir Galileo, 1934. Hann falsaði einnig rithönd Christopher Columbus og Wolfgang Amadeus Mozart.

Handritið sem um ræðir innihélt einnig bréf og kynningu hans á stjörnusjónauka sínum og því sem átti að vera yfirlit yfir rannsóknir hans á tunglum Júpíters 1610.

Það var í maí á þessu ári sem Nick Wilding, prófessor við ríkisháskólann í Georgíu, lýsti yfir „alvarlegum efasemdum um uppruna handritsins“. Nú hefur rannsókn á vegum Michigan háskóla staðfest þessar efasemdir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Hamingjusamasta fólkið á eina einfalda venju sameiginlega og hún byrjar heima

Hamingjusamasta fólkið á eina einfalda venju sameiginlega og hún byrjar heima
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda
FréttirPressan
Í gær

Greg fannst látinn á hótelherbergi og var talinn hafa fengið slag – Tveimur árum síðar kom ótrúleg dánarorsök hans í ljós

Greg fannst látinn á hótelherbergi og var talinn hafa fengið slag – Tveimur árum síðar kom ótrúleg dánarorsök hans í ljós
Pressan
Í gær

Er Jeffrey Epstein á lífi eftir allt saman? – Netverja langar að trúa því

Er Jeffrey Epstein á lífi eftir allt saman? – Netverja langar að trúa því