fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Réðst á konu við N1 í Mosfellsbæ og veitti henni mikla áverka

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot.

Maðurinn, Jens Hjartarson, var ákærður fyrir að veitast með ofbeldi að konu fyrir utan N1 við Háholt í Mosfellsbæ þann 18. júlí 2023. Þá var hann ákærður fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum og fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti.

Líkamsárásin var fólskuleg en samkvæmt ákæru skallaði hann konuna í höfuðið og sló hana ítrekað með krepptum hnefa í andlit og bringu, með þeim afleiðingum að hún hlaut heilahristing, skurð á hægra augnloki, mar á kinnbeini og yfirborðsáverka á höfði og yfir brjóstbeini.

Í dómnum kemur fram að atvikið hafi átt sér stað rétt fyrir miðnætti þann 18. júlí. Meðal gagna málsins voru ljósmyndir og myndskeið úr öryggismyndavél frá bílaplani bensínstöðvarinnar.

„Á myndskeiðinu sést áðurgreind bifreið koma að bensínstöðinni og nema þar staðar. Þar má sjá ákærða sitja í farþegasæti bifreiðarinnar, en brotaþola í ökumannssæti. Eftir skamma stund sést ákærði yfirgefa bifreiðina, ganga í átt að bensíndælum á bílaplaninu og kasta af sér þvagi. Að því loknu sést ákærði snúa aftur að bifreiðinni, þar sem hann fer aftur inn í farþegasætið og krýpur þar á hnjánum og snýr í átt að brotaþola. Má þá sjá ákærða veitast að brotaþola með því að kasta líkama sínum fram að brotaþola með höfuðið á undan. Að svo búnu sést ákærði yfirgefa bifreiðina á ný, en í framhaldi af því ekur brotaþoli í burt og úr mynd,” segir í dómnum.

Í skýrslutöku á bráðamóttöku Landspítalans greindi konan frá því að hún og maðurinn væru í sambandi og hefðu rifist yfir daginn vegna sambands síns.

„Hefði brotaþoli ætlað að aka ákærða í bæinn, en hann hefði viljað stoppa á Áslák og kaupa sér bjór. Ákærði hefði skellt hurðum á bifreið hennar og hún atyrt hann fyrir vikið. Í kjölfarið hafi ákærði snöggreiðst og hafið að svívirða hana. Þegar þau hafi komið að N1 í Háholti hafi ákærði hótað henni líkamsmeiðingum. Ákærði hafi beðið brotaþola um að rétta sér bjór, sem hún hafi neitað að gera. Í kjölfarið á því hafi ákærði skallað brotaþola í nefið og kýlt hana með krepptum hnefa í andlitið.”

Maðurinn játaði sök en í niðurstöðu dómsins kemur fram að maðurinn hefði snúið við blaðinu í lífi sínu og að sögn verið án vímuefna um langt skeið. Þá játaði hann brot sín skýlaust og sýndi iðrun yfir að hafa framið þau.

Áréttaði hann að hafa verið viti sínu fjær vegna fíkniefnaneyslu í umrætt sinn. Loks hefði hann viðurkennt bótaskyldu og harmað að hafa valdið konunni skaða.

Í dómnum kemur fram að Jens eigi langan sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2002. Hlaut hann meðal annars átta ára fangelsisdóm vorið 2013 fyrir að nauðga stúlku og beita þrjár til viðbótar ofbeldi.

Auk þess að sæta fangelsi í fimm mánuði var honum gert að greiða konunni 400 þúsund krónur í miskabætur, 800 þúsund króna laun skipaðs verjanda síns og 250 þúsund krónur í annan sakarkostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Simmi Vill haslar sér nýjan völl: „Mikill heiður að taka við slíku verkefni”

Simmi Vill haslar sér nýjan völl: „Mikill heiður að taka við slíku verkefni”
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Gagnrýnir „óásættanlega mismunun“ í Reykjanesbæ

Gagnrýnir „óásættanlega mismunun“ í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir Guðmund Inga ekki á leið í annan flokk og mýtu að hún sé að reyna að losa sig við Flokk fólksins – „Hún er real hún Inga“

Segir Guðmund Inga ekki á leið í annan flokk og mýtu að hún sé að reyna að losa sig við Flokk fólksins – „Hún er real hún Inga“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íslendingar og Pólverjar hjálpuðu Úkraínumönnum yfir þröskuldinn í máli gegn Rússum – „Mikilvægt skref“

Íslendingar og Pólverjar hjálpuðu Úkraínumönnum yfir þröskuldinn í máli gegn Rússum – „Mikilvægt skref“
Fréttir
Í gær

Dómurinn gegn Helga Bjarti: Gögn ekki talin styðja allan framburð drengsins – Kynferðisleg áreitni en ekki nauðgun

Dómurinn gegn Helga Bjarti: Gögn ekki talin styðja allan framburð drengsins – Kynferðisleg áreitni en ekki nauðgun
Fréttir
Í gær

Varar við endurkomu verðstýringar ríkisins og segir að stjórnvöld ættu að líta í eigin barm

Varar við endurkomu verðstýringar ríkisins og segir að stjórnvöld ættu að líta í eigin barm