fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Pressan

Þess vegna situr þú alltaf á sama staðnum í sófanum

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 18:30

Situr þú alltaf á sama staðnum í sófanum? Mynd/Karolinafund

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist kannski ekki skipta miklu máli hvar þú situr í sófanum en það er sjaldnast tilviljun sem ræður því hvar þú situr. Fyrir marga er þetta ákveðin venja sem skapar ró, strúktúr og tilfinningu um að þeir séu við stjórnvölinn í erfiðu hversdagslífinu.

Í atferlis- og umhverfissálfræði er föstu sætisvali lýst sem litlum ankerum sem tryggja fyrirsjáanleika.

Heilinn elskar að stytta sér leið og vaninn að setjast alltaf á sama stað sparar andlega orku.

Tiedonhaku segir að samkvæmt því sem vísindamenn segja, þá geti þörfin fyrir að setjast alltaf á sama stað verið mjög sterk hjá fólki sem hefur upplifað óróleika í lífinu eða þjáist af fullkomnunaráráttu.

Að eiga ákveðið pláss í sófanum er oft eins og að eiga persónulegt svæði. Það sýnir ákveðin tengsl, dregur úr líkunum á árekstrum við aðra og með tímanum tengist þetta jákvæðum upplitunum, allt frá afslöppun eftir vinnu til ánægjulegra stunda með fjölskyldunni.

Fyrir aðra er valið ekki af sálfræðilegum toga heldur praktískum. Birtustig, staðsetning sjónvarpsins eða borðs eða innstungu getur verið ástæðan fyrir sætisvalinu. En þegar sama sætið hefur verið valið nokkrum sinnum, verður það fljótt að vana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi