fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Varpar ljósi á hversu margir úkraínskir hermenn hafa dáið í stríðinu

Pressan
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Volodomír Selenskíj, forseti Úkraínu, segir að 55 þúsund úkraínskir hermenn hafi dáið á vígvellinum í stríðinu við Rússa síðan það hófst fyrir fjórum árum.

Selenskíj lýsti þessu í viðtali við France 2 TV í gær. Hann sagði að fyrir utan þessa 55 þúsund væri margra saknað og engar staðfestar upplýsingar um afdrif þeirra.

Yfirvöld bæði í Kænugarði og Moskvu hafa verið dugleg að áætla tölur um mannfall hins aðilans, en að sama skapi hafa þau verið treg til að birta staðfestar tölur um eigið mannfall.

BBC segist þó hafa staðfestar upplýsingar um að Rússar hafi misst að minnsta kosti 160 þúsund hermenn í stríðinu.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur leitt tilraunir til að binda enda á stríðið sem hófst með allsherjarinnrás Rússlands í nágrannaríki sitt þann 22. febrúar 2022.

Sérstakir sendifulltrúar Bandaríkjanna, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, áttu í vikunni viðræður við samningamenn Rússlands og Úkraínu í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Witkoff skrifaði á samfélagsmiðlinum X að viðræðurnar hefðu verið „ítarlegar og árangursríkar“, en bætti við að „mikil vinna væri fyrir höndum”.

Síðast gaf Selenskíj opinbera uppfærslu á mannfalli úkraínska hersins í desember 2024 en þá sagði hann að 43 þúsund hefðu látist.

Í frétt BBC kemur fram að fyrir sex mánuðum hafi innanríkisráðuneyti Úkraínu skráð yfir 70 þúsund manns opinberlega týnda, bæði hermenn og óbreytta borgara, en sundurliðun talnanna hefur ekki verið birt. Raunverulegur fjöldi gæti verið hærri, enda eru upplýsingar um mannfall afar viðkvæmar og til þess fallnar að hafa áhrif á baráttuvilja almennings.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“