fbpx
Sunnudagur 15.mars 2026
Pressan

Stórtækur kjötþjófur henti góssinu í miklu uppnámi eftir að hann sá kærustuna elda með öðrum manni

Pressan
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kúbumaðurinn og Flórídabúinn Heannys O. Alvarez Reyna er sakaður um stórfelldan kjötþjófnað en þann 5. janúar síðastliðinn sást hann á öryggismyndavélum stela miklu magni af kjöti úr tveimur verslunum Publix í Jacksonville.

Úr annarri búðinni stal hann nauta- og lambakjöti fyrir tæpar 200 þúsund krónur og um 20 mínútum síðar stal hann úrvali af svína- og nautakjöti, ásamt hreinlætisvörum, frá annarri verslun í nágrenninu fyrir um 250 þúsund krónur.

Eftir að lögreglan hafði uppi á honum gekkst hann við brotunum og sagði að eftir þjófnaðinn hafi hann ekið rakleiðis til kærustu sinnar þar sem hann kom að henni í miðjum klíðum að elda með öðrum manni.

Við þetta komst Reyna í mikið uppnám og henti meirihlutanum af illa fengna kjötinu. Lögreglan segir að þó að Reyna hafi vandað valið á kjötinu sé hann ekki vandaður maður enda hafi hann valdið verslununum miklu tjóni.

Reyna situr nú í haldi.

„Ástarsamband hans var kannski ekki upp á sitt besta en þjófnaður er ekki leiðin til að leysa slíkt. Kjarni málsins er þessi: Ef þú stelur úr verslunum okkar munum við ná þér og þú þarft að mæta afleiðingunum,“ sagði fógetinn Rick Staly sem þrátt fyrir alvarleika brotsins virðist sjá broslegu hliðarnar á þessu því í stað þess að segja enska orðið fyrir að mæta (e. meet) notaði hann orðið fyrir kjöt (e. meat). Yfirlýsing fógetans innihélt meira orðagrín en hann sagði að glæpurinn væri ekki kosher en kosher er hugtak í gyðingdómi yfir þær fæðutegundir sem eru hreinar í trúarlegum skilningi og leyfilegar til neyslu og að Reyna hafi greinilega reynt að mjólka kerfið.

Independent greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að valda konu fósturláti með því að setja sterkt verkjalyf í lasagna

Reyndi að valda konu fósturláti með því að setja sterkt verkjalyf í lasagna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barin til óbóta í ástarhreiðrinu sem elskhuginn hafði útbúið – „Ég veit ekki við hverju ég á að búast á morgun“

Barin til óbóta í ástarhreiðrinu sem elskhuginn hafði útbúið – „Ég veit ekki við hverju ég á að búast á morgun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íranar birta ógnvekjandi myndband af vopnabúri sínu

Íranar birta ógnvekjandi myndband af vopnabúri sínu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nemandinn sem ók yfir kennarann sinn rýfur þögnina

Nemandinn sem ók yfir kennarann sinn rýfur þögnina