fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Fékk tveggja ára fangelsi fyrir að ljúga því að henni hefði verið nauðgað – Hann vildi bara koma henni til hjálpar

Pressan
Föstudaginn 6. febrúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rachael Jones, 38 ára kona í Bretlandi, hefur verið dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir að ljúga því að henni hefði verið nauðgað. Sá sem hún benti á vann sér það eitt til saka að koma henni til aðstoðar þegar hann kom auga á hana í bifreið sinni í Stoke-on-Trent.

Jones var drukkin, grátandi og berfætt þegar maðurinn, Salim Ullah, stöðvaði bifreið sína og bauðst til að skutla henni heim.

Atvikið átti sér stað í apríl 2022 en fyrr þetta kvöld hafði Jones verið að skemmta sér með vinum sínum. Henni hafði verið vísað út úr leigubíl eftir ágreining við leigubílstjóra og hafði Salim áhyggjur af ástandi hennar þegar hann ók fram hjá henni.

Eftir að hann hafði ekið henni heim sakaði konan hann hins vegar um að hafa lokkað hana inn í bíl og nauðgað henni ásamt tveimur öðrum mönnum af pakistönskum uppruna. Þá hefðu þeir hótað að drepa hana ef hún segði frá.

Lögregla fann Salim með því að finna númerið á bifreið hans í gegnum öryggismyndavélar og var hann handtekinn á heimili sínu.

Hann var í haldi lögreglu í um 30 klukkustundir og þurfti á þeim tíma að gangast undir ítarlegar rannsóknir. Rannsókn málsins leiddi síðar í ljós að ásakanirnar voru rangar. Salim hafði tekið samskipti sín við Jones upp á farsíma sinn og reyndist upptakan lykilsönnunargagn við rannsókn málsins. Jones viðurkenndi síðar að hafa logið og bar fyrir sig mikilli áfengisneyslu.

Ákæra var gefin út í kjölfarið og við uppkvaðningu dómsins sagði dómarinn að hegðun Jones gæti haft víðtækar afleiðingar, meðal annars með því að draga úr vilja almennings til að veita ókunnugum aðstoð í neyð. Hann benti jafnframt á að rangar ásakanir gætu grafið undan trúverðugleika þeirra sem raunverulega hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi.

Í yfirlýsingu fyrir dómi lýsti maðurinn því að málið hefði valdið sér og fjölskyldu hans miklu álagi, en eiginkona hans var þegar þarna var komið við sögu komin sex mánuði á leið með þeirra fyrsta barn. Hann sagðist telja að pakistanskur uppruni hans hefði haft áhrif á að hann var sakaður um glæpinn.

Lögregluyfirvöld í Cheshire hafa ekki beðist afsökunar á handtökunni, en í yfirlýsingu frá embættinu var áréttað að mikilvægt væri að fórnarlömb kynferðisofbeldis treystu sér áfram til að tilkynna brot og að mál sem þessi væru undantekning en ekki regla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“