fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

92 ára kona varð þremur að bana

Pressan
Föstudaginn 6. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörmulegt slys átti sér stað í Westwood-hverfinu í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók inn í verslun.

Tildrög slyssins eru í rannsókn en ökumaðurinn sem um ræðir var 92 ára kona.

Í frétt AP kemur fram að talið sé að konan hafi ekið fyrst á hjólreiðamann skammt frá en síðan haldið akstrinum áfram um eina húsalengju áður en hún missti stjórn á bílnum og endaði ferð sína í bakaríi stórmarkaðarins 99 Ranch Market.

Nokkur fórnarlömb sátu föst undir bílnum og var mikill viðbúnaður á vettvangi.

Anthony Espinoza, lögreglustjóri hjá lögreglunni í Los Angeles, sagði um „óheppilegt slys“ hefði verið að ræða og ekkert benti til þess að um ásetning hefði verið að ræða.

Slökkviliðið Los Angeles staðfesti að tveir menn, 30 og 55 ára, og 42 ára kona, sem öll voru stödd inni í bakaríinu þegar slysið varð, hafi látist á vettvangi. Tveir 35 ára karlar voru fluttir á sjúkrahús í lífshættu og tveir aðrir menn, 37 og 38 ára, voru í stöðugu ástandi í gærkvöldi.

Hjólreiðamaðurinn sem varð fyrir árekstrinum og ökumaðurinn sjálfur afþökkuðu flutning á sjúkrahús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eignaðist sex börn með draumaprinsinum sem hún kynntist í biblíuhópnum – Síðan hrundi spilaborgin með látum

Eignaðist sex börn með draumaprinsinum sem hún kynntist í biblíuhópnum – Síðan hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans
Pressan
Fyrir 4 dögum

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mannránið sem hélt Spáni í heljargreipum í 900 daga

Mannránið sem hélt Spáni í heljargreipum í 900 daga