fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Frakkar afnema lög sem kveða á um að það sé skylda fólks í hjónabandi að stunda kynlíf

Pressan
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franska þingið hefur ákveðið að afnema lög sem kveða á um skyldu gifts fólks til að stunda kynlíf með maka sínum.

Þingið samþykkti nýlega að afnema svokölluðu „hjúskaparréttindi“ en þau kveða á um skyldu fólks til að stunda kynlíf með maka sínum. Þingið samþykkti viðbót við lögin en þessi viðbót kveður á um að þótt fólk búi saman, þá „feli það ekki í sér skyldu til að stunda kynlíf“.

Með þessari lagabreytingu verður ekki lengur hægt að nota skort á kynlífi sem rök fyrir kröfu um hjónaskilnað.

BBC segir að breytingin muni þó líklega ekki hafa mikil áhrif á dómstóla landsins en stuðningsfólk þess vonast til að hún muni koma í veg fyrir nauðganir í hjónaböndum.

„Með því að vera með svona rétt eða skyldu, þá erum við sem samfélag að samþykkja kerfi þar sem eiginmaðurinn drottnar yfir eiginkonunni og getur níðst á henni,“ sagði Marie-Charlotte Garin, þingkona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er líklega elsta górilla heims

Þetta er líklega elsta górilla heims
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni