fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Handtekinn eftir að myndbandið fór í dreifingu

Pressan
Föstudaginn 6. febrúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sautján ára piltur í Flórída hefur verið handtekinn og sakaður um alvarlega líkamsárás eftir að hafa hellt bensíni yfir vin sinn og kveikt í honum á meðan aðrir unglingar hlógu og tóku atvikið upp á myndband.

Atvikið átti sér stað 11. janúar á Kauffman-eyju í Lake Kerr í Marion-sýslu að því er segir í frétt New York Post.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu sátu fjórir vinir við varðeld á eyjunni og drukku áfengi þegar einn úr hópnum, Bradey Ming, fór að fikta í bensínbrúsa.

Myndefni úr farsíma sýnir hann hella bensíni á eldinn með þeim afleiðingum að mikill eldur blossaði upp. Í kjölfarið hljóp hann að vini sínum, sem sat nálægt eldinum, og hellti eldfimum vökva við fætur hans og á fótleggi hans með þeim afleiðingum að hann varð alelda á svipstundu.

Betur fór þó en á horfðist því pilturinn gat stokkið út í sjóinn og slökkt eldinn sem hann gerði að lokum.

Þrátt fyrir það hlaut drengurinn annars stigs bruna á hendi, fæti og rasskinn auk djúpra brunasára á neðri hluta beggja fótleggja og á vinstra læri. Hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús í Gainesville þar sem hann var lagður inn á gjörgæslu barnadeildar.

Upphaflega sagði drengurinn foreldrum sínum að bensínflaska hefði sprungið í höndum hans, en faðir hans fann síðar myndband af atvikinu á netinu og hafði samband við lögreglu.

Við yfirheyrslur hjá lögreglu sagði Bradey að um fíflagang hafi verið að ræða og engin illindi legið að baki. Hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu en er í haldi lögreglunnar í Marion-sýslu án möguleika á lausn gegn tryggingu meðan málið er til rannsóknar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“