fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
Pressan

Háskóli játar mistök – Greiðir foreldrum stúdínu 1,4 milljarða í bætur

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 28. október 2020 07:00

Lauren-McCluskey. Mynd:McCluskey-fjölskyldan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Lauren McCluskey, 21 árs, fannst látin í aftursæti bíls í Utah 2018 skók það háskólasamfélagið í University of Utah sem og Bandaríkjunum öllum. Hún var skotin til bana. Fljótlega kom í ljós að banamaður hennar var fyrrum unnusti hennar, Melvin Rowland, sem var 16 árum eldri en hún. Hann framdi sjálfsvíg þegar lögreglan reyndi að handtaka hann.

Í kjölfar þessa hörmulega atburðar ákváðu foreldrar Lauren, þau Jill og Matt McCluskey, að höfða mál á hendur háskólanum og krefjast bóta því þau töldu að háskólinn hefði ekki gert nóg til að vernda dóttur þeirra.

Þau kröfðust 56 milljóna dollara í bætur en nú hafa þau gert sátt við háskólann um 10,5 milljónir í bætur en það svarar til um 1,4 milljarða íslenskra króna. Einnig á háskólinn að gefa þrjár milljónir dollara í sjóð hefur verið stofnaður í nafni Lauren.

„Við brugðumst Lauren og fjölskyldu hennar. Við viðurkennum að við tókum ekki á máli Lauren eins og við hefðum átt að gera. Starfsfólkið skildi ekki í hvaða stöðu hún var,“

segir í tilkynningu frá háskólanum að sögn CNN.

Eftir morðið kom fram að Lauren og Melvin hefðu átt í ástarsambandi eftir að þau kynntust á bar. Hann hafði setið í fangelsi í rúmlega 10 ár fyrir kynferðisbrot en því hélt hann leyndu fyrir henni. Hún komst síðan að þessu og sleit sambandinu strax.

Á næstu tveimur vikum sneri hún sér rúmlega 20 sinnum til lögreglunnar á háskólasvæðinu því Melvin áreitti hana stöðugt með skilaboðum. Hann reyndi einnig að kúga fé  út úr henni. Hún sagði lögreglunni að hún hefði greitt honum 1.000 dollara í þeirri von að hann myndi ekki birta vafasamar myndir af henni.

Auk bótagreiðslna mun háskólinn byggja íþróttahús sem verður nefnt eftir Lauren og námskeið, sem er ætlað að fræða fólk um ofbeldi og viðbrögð við því, verður nefnt eftir henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Köttur sem týndist í fellibylnum Helene sameinaðist fjölskyldu sinni á undraverðan hátt eftir 443 dag – „Jólakraftaverk“

Köttur sem týndist í fellibylnum Helene sameinaðist fjölskyldu sinni á undraverðan hátt eftir 443 dag – „Jólakraftaverk“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sá spákonan Baba Vanga fyrir sér árið 2026 – Stórtíðindi í nóvember?

Svona sá spákonan Baba Vanga fyrir sér árið 2026 – Stórtíðindi í nóvember?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sakamál: Var framið réttarmorð á Rebeccu eða er hún besti lygari í heimi?

Sakamál: Var framið réttarmorð á Rebeccu eða er hún besti lygari í heimi?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þríeykið bar grímur og andlitsmálningu — Hófu skothríð í matvöruverslunum og drápu 28 manns

Þríeykið bar grímur og andlitsmálningu — Hófu skothríð í matvöruverslunum og drápu 28 manns
Pressan
Fyrir 4 dögum

Segir að margir ungir Bandaríkjamenn séu annaðhvort of feitir eða heimskir fyrir herinn

Segir að margir ungir Bandaríkjamenn séu annaðhvort of feitir eða heimskir fyrir herinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Enn einn fanginn tekinn af lífi í Bandaríkjunum

Enn einn fanginn tekinn af lífi í Bandaríkjunum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá
Pressan
Fyrir 5 dögum

25 ár frá dauða Kirsty MacColl: Fyrrverandi eiginmaður sakar milljarðamæring um yfirhylmingu

25 ár frá dauða Kirsty MacColl: Fyrrverandi eiginmaður sakar milljarðamæring um yfirhylmingu