fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Pressan

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Pressan
Sunnudaginn 1. mars 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstöður nýlegra rannsókna sýna að einföld áhugamál geta gegnt mikilvægu hlutverki varðandi andlegt og líkamlegt heilbrigði.  Sérfræðingar segja að áhugamál veiti ekki aðeins ánægju dags daglega, þau geti einnig lengt lífið.

Þetta kemur fram í Good Houskeeping sem segir að þetta snúist um að leggja áherslu á hluti sem veita orku, þarfnast einbeitingar og félagslegra samskipta.

Kerry Burnight, höfundar metsölubókarinnar Joyspan, segir áhugamál vera nauðsynlegan hluta af heilbrigðu lífi. „Þegar búið er að finna áhugamál, eru til óteljandi möguleikar bæði á staðnum og á Internetinu. Þetta er ekki lúxus, þetta er mjög mikilvægt til að dafna og lifa löngu lífi,“ er haft eftir honum.

Meðal þeirra áhugamála sem eru sögð góð fyrir heilsuna og lengja lífið eru:

Garðvinna – Þetta er það áhugamál sem einna helst er mælt með. Það tryggir daglega hreyfingu, dregur úr stressi og markmiðin eru skýr þegar kemur að vexti plantna.

Líkamleg hreyfing – Dans, sund, gönguferðir eða léttar styrktaræfingar geta styrkt vöðvana og jafnvægið og eflt heilann. Meira að segja stutt hreyfing í dagsins önn getur skipt miklu máli.

Tónlist og söngur – Að syngja eða spila á hljóðfæri örvar heilann og bætir sköpunargáfuna. Rannsóknir hafa sýnt að þetta hjálpar okkur að halda andlegri getu okkar í góðu formi langt fram eftir ævinni.

Félagsleg samvera – Það getur dregið úr stressi, komið í veg fyrir einmanaleika og styrkt andlegt heilbrigði að vera saman með öðru fólki og gera eitthvað með því. Miðað við niðurstöður rannsókna þá eru félagsleg samskipti mikilvæg til að eldast á heilbrigðan hátt.

Sjálfboðaliðastarf – Að taka þátt í sjálfboðaliðsstarfi veitir tilgang í lífinu og tryggir skipulag. Rannsóknir hafa sýnt að eldra fólk, sem tekur þátt í sjálfboðaliðsstarfi, lifir oft lengur en þeir sem taka ekki þátt.

Skapandi verkefni – Að mála, prjóna, taka ljósmyndir eða önnur form skapandi verkefna halda heilanum gangandi og veita honum hvíld frá amstri hversdagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum