Pressan

Byssum beint að höfðum flóttamanna og bráðnu plasti hellt yfir þá - Myndband

Mynd
Sýrlenskir flóttamenn. Mynd:Wikimedia Commons/ Mstyslav Chernov

Flóttamaður liggur á maganum bundinn á höndum og fótum. Gólfflísarnar eru blóðugar, andlitið er afskræmt. Fyrir aftan manninn stendur óþekktur maður og miðar svartri skammbyssu á hann.

Þetta er ekki skáldskapur heldur það sem sést á myndum, sem voru teknar í Líbíu, af meðferð sem flóttamenn sæta þar í landi. Breska sjónvarpsstöðin Channel 4

fjallaði um málið

fyrir helgi og sýndi myndir og myndbandsupptökur frá flóttamannabúðum í Líbíu. Þar eru flóttamenn pyntaðir eftir að hælisumsóknum þeirra hefur verið hafnað í Evrópu.

Á einni upptökunni sést þegar bráðnu plasti er hellt yfir ungan mann á meðan skammbyssu er miðað á hann.

Lögmenn, sem sérhæfa sig í útlendingarétti og málefnum innflytjenda og flóttamanna, hafa viðað að sér efni um pyntingar og kúgun á flóttamönnum og innflytjendum.

„Þeir eru pyntaðir á meðan foreldrar þeirra geta heyrt þá öskra í gegnum símann. Þetta er til að fá foreldrana til að greiða háar fjárhæðir fyrir að fá börn sín aftur.“

Segir Giulia Tranchina í samtali við Channel 4.

„Ég hef hitt marga skjólstæðinga sem eru illa farnir andlega og þaktir örum. Unglingar, sem var haldið í 2-3 ár, og síðan sendir aftur þaðan sem þeir komu frá.“

Segir hún í þættinum.

Evrópusambandið er borið þungum sökum í þættinum og sagt vera samsekt um glæpi gegn innflytjendum því hertar innflytjendareglur geri að verkum að fólkið sé sent aftur til Líbíu í stað þess að það fái hæli í Evrópu. Núverandi stefna ESB gengur út á að þjálfa líbísku strandgæsluna og styðja fjárhagslega við hana en án þess að fylgst sé með hvað gerist í flóttamannabúðum í Líbíu segir í þættinum.

„Forgangsverkefni Evrópuríkja er að stöðva flóttamenn og innflytjendur í að komast yfir Miðjarðarhafið. Engin ríki leggja neitt af mörkum til að stöðva mannréttindabrot í Líbíu.“

Segir Matteo Debellis, hjá Amnesty International.

[embed] [/embed]