fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Fékk áfall þegar hann sá hvað leyndist ofan í ruslatunnunni – Sjáðu myndbandið

Pressan
Mánudaginn 2. mars 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjulegt atvik náðist á eftirlitsmyndavél lögreglubifreiðar í Ohio í Bandaríkjunum á dögunum. Starfsmaður í sorphirðu í Huber Heights fékk þá vægt taugaáfall þegar hann opnaði sorptunnu og sá hvað leyndist ofan í henni.

Eins og sést á myndbandinu var sorphirðumaðurinn að gera sig reiðubúinn til að tæma tunnuna þegar hann sá að ofan í henni leyndist sprelllifandi manneskja.

Á upptökunni sést sorphirðumaðurinn hrökkva aftur fyrir sig í miklum skelfingu áður en hann veifar höndunum í átt að lögreglu til að gera henni viðvart.

Skömmu síðar sést maðurinn stökkva upp úr tunnunni og hlaupa af stað niður götuna, en lögreglumaður veitir honum eftirför.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði maðurinn skömmu áður flúið af vettvangi þegar lögregla stöðvaði för hans í reglubundnu eftirliti. Virðist hann hafa komið sér ofan í tunnunni á flótta sínum undan lögreglu.

Lögregluembættið gaf manninum viðurnefnið „Oscar the Grouch“ í tilkynningu sinni, með vísan til persónu úr bandaríska barnasjónvarpsþættinum Sesame Street sem einmitt býr í ruslatunnu.

Myndbandið hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum, þar sem margir hafa gert góðlátlegt grín að flóttatilrauninni. Meðal annars bentu sumir á óheppni mannsins að hafa valið ruslatunnu sem felustað á sorphirðudegi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór í skurðaðgerð eftir heilablóðfall og vaknaði upp með nýjan hreim

Fór í skurðaðgerð eftir heilablóðfall og vaknaði upp með nýjan hreim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það getur kostað þig fangelsisdóm að taka nikótín með í fríið

Það getur kostað þig fangelsisdóm að taka nikótín með í fríið