fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Háskólanemi datt fram úr rúminu og endaði þannig milljónum ríkari – „Þetta var Guð, ekkert annað útskýrir þetta“

Pressan
Mánudaginn 2. mars 2026 19:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjúkrunarfræðinemi í Ohio uppgötvaði heldur betur hvað það þýðir að vera lán í óláni þegar hún lagði sig á Valentínusardaginn. Henni tókst vissulega að sofna en vaknaði svo með andfælum þegar hún datt fram úr rúminu.

Voru þá góð ráð dýr. Átti hún að hlamma sér aftur í bólið og freista þess að eiga farsælli blund eða átti hún að láta þetta gott heita? Hún ákvað að velja síðari kostinn og í stað þess að leggja sig aftur skellti hún sér út í næstu Wallmart-verslun. Þar ákvað hún að nota um 150 krónu vinning sem hún hafði fengið á skafmiða til að kaupa sér lottómiðann, en hún keypti miðann um níu mínútum fyrir lokunartíma útdráttarins sem fór fram þá um kvöldið.

Þegar hún sneri aftur heim kíkti hún á vinningstölurnar og uppgötvaði sér til mikillar gleði að þetta voru sömu tölurnar og voru á miðanum hennar. Hún hafði unnið 16 milljónir króna.

Hún telur nú að það hafi verið drottinn sjálfur sem vakti hana af blundinum svo hún gæti unnið milljónirnar. „Þetta var Guð, ekkert annað útskýrir þetta,“ sagði hún við starfsmenn lottósins. Hún mun ætla að nota vinninginn til að borga niður skuldir, kaupa bíl og leggja svo restina inn á sparnaðarreikning. Sparnaðurinn mun gera henni kleift að minnka við sig vinnu á meðan hún lýkur námi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps