fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Matur

Risarækjukokkteill eins og hann gerist bestur

Sjöfn Þórðardóttir
Mánudaginn 9. maí 2022 10:19

Rækjukokteillinn klassíski er algjör nostalgía. Rækjukokteillinn er forréttur sem naut mikillar vinsælda á sjöunda og áttunda áratugnum í Norður-Evrópu og Bandaríkjunum og var fastur liður á matseðlum flestra veitingahúsa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rækjukokkteillinn klassíski er algjör nostalgía og á vel við sem forréttur með helgarmatnum. Rækjukokteillinn er forréttur sem naut mikillar vinsælda á sjöunda og áttunda áratugnum í Norður-Evrópu og Bandaríkjunum og var fastur liður á matseðlum flestra veitingahúsa. Í Bandaríkjunum er „shrimp cocktail“ gerður með risarækjum sem bornar eru fram með rauðri „cocktail“-sósu sem yfirleitt samanstendur af chili-sósu, tabasco, worchester og smá sítrónu.

Evrópski rækjukokkteillinn er aftur á móti upprunalega frá Bretlandi og þar eru notaðar rækjur (prawns) eins og við þekkjum þær sem bornar eru fram með sósu sem heitir „Marie Rose“ en sú sósa er einnig stundum kölluð „kokteilsósa“. Samkvæmt heimildum um sögu sósunnar er breska matarkonan Fanny Cradock, yfirleitt talinn höfundur þessarar sósu. Hún naut mikilla vinsælda í matargerð á fyrstu áratugunum eftir seinni heimsstyrjöldina. Gaman er að geta þess að Marie Rose sósan er náskyld Þúsundeyjasósunni.

Hér er komin uppskrift af klassíska rækjukokkteilnum með risarækjum sem bráðnar í munni og risarækjurnar er hægt að fá eldaðar í Bónus, tilbúnar til framreiðslu eftir að hafa afþídd þær. Með rækjukokkteilnum er sér útgáfa af Marie Rose sósunni en það er í góðu lagi að vera með Þúsundeyjasósuna eða jafnvel limesósu.

Risarækjukokkteill

Fyrir 4-6

450 g eldaðar risarækjur (fást frosnar í Bónus á Bónusverði), afþíddar

4 dl Maria Rosa sósa/Þúsundeyjasósa (sjá uppskrift fyrir neðan)

1-2 stk. sítrónur

½ agúrka

1 stk salatblaðhaus eða salat að eigin vali

handfylli af steinselju eða sprettum

1-2 stk. ferskt smátt saxað chili, má sleppa

Maria Rose sósan

2 dl majónes að eigin vali

1-2 msk. sýrður rjómi að eigin vali

1,5 dl Hunts tómatsósa

væn skvetta (eða tvær) af Worchester-sósu

skvetta af Tabasco

sítrónusafi eftir smekk

Byrjið á því að píska saman majónes, sýrðan rjóma og tómatsósu. Bætið Worchester-sósu og Tabasco saman við. Kreistið smá sítrónusafa út í og pískið vel saman. Geymið í kæli. Setjið síðan rækjukokkteilinn saman. Það er gaman að bera hann fram í kokteilglasi en auðvitað má líka hafa réttinn á diski.

Fyrst eru salatlauf/blöð sett í botninn á glasinu. Það er hægt að nota lambhagasalat, salatblöndu, romaine eða jafnvel gróf saxað jöklasalat. Þá skammtur af risarækjum settar ofan í og á barminn á kokteilglasinu ásamt sítrónu- og gúrkusneiðum, sósan yfir og loks skreytt með smátt söxuðu chili, sprettum og/eða steinselju.

*Allt hráefnið í rétt fæst í verslunum Bónus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa