Jólasamlokan í ár inniheldur hamborgarahrygg, pestó, eplasalsa, chili, mangó og spínat. Hún þykir bæði brakandi fersk og góð. Einnig er jólabragur á Sweet chili Turkey samlokunni með kalkúnabringu, pestó, chilisultu, chili og spínati, kjörin samloka fyrir þá sem að vilja bæði léttleika og hita. Jólasamlokurnar ættu að standast væntingar kröfuhörðustu samlokuaðdáenda.

Jóladjúsar Lemon eru þrír; Jólakötturinn með eplum, engifer og chai, Ef ég nenni með mandarínum, ástaraldin og ananas og Christmas flirt sem inniheldur vanilluskyr, epli og chai.

„Jólasamlokurnar og djúsarnir okkar njóta alltaf mikilla vinsælda á aðventunni. Viðskiptavinir okkar vilja huga að hollustunni í desember en um leið fá forsmakk af jólunum. Hægt verður að fá bragð af jólum á öllum stöðum Lemon til jóla“ segir Unnur Guðríður Indriðadóttur markaðsstjóri Lemon.

Drykkirnir eru hver öðrum betri og áferðin hin jólalegasta eins og sjá má á myndinni.

*Kynning