fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Þetta borðar einn helsti ketó-sérfræðingur Íslands á venjulegum degi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 29. ágúst 2020 13:05

María Krista Hreiðarsdóttir. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Krista Hreiðarsdóttir er grafískur hönnuður og einn helsti ketó-sérfræðingur Íslands. Hún segist hafa verið Íslandsmeistari í megrun en eftir að hún hafði kynnst ketó og lágkolvetnamataræði fann hún sína hillu. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi?

„Ég vinn hjá sjálfri mér sem grafískur hönnuður og matarbloggari en ég rek bloggsíðuna mariakrista.com og held úti Instagram-síðunni @kristaketo. Ég held líka námskeið og gaf út vefnámskeið núna í apríl þegar COVID mætti á svæðið,“ segir María Krista.

„Ég fer eins oft og ég get á morgnana í leikfimi í Hress í Hafnarfirði sem er klárlega vinalegasta og besta stöðin á landinu, enda hef ég verið fastakúnni í rúm 15 ár held ég svei mér þá. Síðan taka við verkefni fyrir heildsölur og matvöruverslanir en ég vinn mikið í samstarfi við fyrirtæki, blogga og mynda uppskriftir. Ég hanna síðan mínar eigin gjafavörur ásamt eiginmanninum, bý til uppskriftir og prenta á plöstuð spjöld sem seljast vel. Svo það er nóg að gera á heimilinu ásamt því að sinna barnabarni eins oft og mögulegt er og litla hundinum okkar Sólon.“

Ketó

María Krista fylgir ketó og lágkolvetnamataræði til skiptis. „Það fer eftir hversu mikið ég er að baka og stússa fyrir bloggið. Baksturinn myndi flokkast meira undir lágkolvetnamataræðið og ég elska að baka og gera sykurlausar útgáfur af mínum uppáhaldsmat. Það er hins vegar alltaf gott að grípa í ketó og kolvetnainntaka mín er oftast mjög lág.“

María Krista ver nánast öllum deginum í eldhúsinu „Ég elda mikið fyrir bloggið mitt og Instagram og er stöðugt að þróa og prófa nýjar uppskriftir. Einhverjir kalla mig kannski góðan kokk og þá sérstaklega þeir sem eru á sama fæði og ég. Krakkarnir eru kannski ekki alltaf hrifnir þegar þeir heyra orðið „sykurlaust“ en þeir hafa gott af því og borða nú allan mat sem ég set á borð fyrir þau,“ segir hún.

Uppáhaldsmáltíð

„Mér finnst steik mjög góð og hef lært að elska brokkolí meira en góðu hófi gegnir. Ég reyndar lærði að borða grænmeti þegar ég fór að fylgja ketó mataræðinu því það snýst svo sannarlega ekki eingöngu um beikon og egg. Ég er mikill kúrbítsaðdáandi, borða eggaldin, brokkolí og grasker sem meðlæti og nota hnúðkál í „kartöflusalatið.“ Ég hef líklega sjaldan borðað eins mikið af fjölbreyttu grænmeti og nú. Ég elska einnig kalkún en ég passa mig á að hafa hann spari á jólunum og mögulega páskum,“ segir María Krista.

Matseðill Maríu Kristu

Morgunmatur:

Ég byrja alla daga á Bulletproof kakóbolla en hann samanstendur af kaffi, MCT-olíu, smjöri, heilögu kakói frá kako.is, stevíu og Vital Protein kollagen-dufti. Ég geng á þessu alveg langt fram yfir hádegi.

Hádegismatur:

Ég geri oft svona ostavöfflur og fæ mér þá avókadó-salat ofan á eða léttsoðið egg. Ég á það til að henda í ketó „grjónagraut“ sem samanstendur af kotasælu, eggi og hörfræmjöli með rjóma og kanil, hitað í potti. Svo ef ég gríp mér eitthvað fljótlegt þá eru það salötin frá Local sem ég gerði í samstarfi með þeim og eru öll ketóvæn.

Millimál:

Ef ég narta í eitthvað þá eru það stundum harðsoðin egg, pepperonistangir, hrökkkex, hnetur, ostur, einstöku sinnum fitubomba sem ég útbý og á í frysti.

Kvöldmatur:

Við reynum að borða saman flest okkar þótt það sé ekki alltaf á hefðbundnum tíma en við erum duglega að grilla langt fram yfir sumar og núna eru hamborgarar og steikur vinsælar. Ég geri mér sérstakt brauð undir minn borgara og uppáhalds er að bera fram með brie-osti og sykurlausum sultuðum rauðlauk. Piparostasósa og steik með brokkolí steiktu upp úr nógu miklu smjöri er svo mjög vinsælt líka.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa