Það getur verið leiðindaverk að þrífa glugga, sérstaklega ef fólk á ekki réttu græjurnar. Tuskur og pappír vilja skilja eftir för á rúðunni og þá er ekkert unnið með pússningunni.
Lengi hefur verið mælt með notkun dagblaða til að pússa glugga en deilt er um hvort með þeim eigi eingöngu að nota vatn eða líka sérstök gluggahreinsiefni.
Ókosturinn við dagblöðin er hins vegar sá að hendurnar verða oft kámugar af prentsvertu sem er heldur hvimleitt, sérstaklega ef fólk á til að gleyma sér og snerta veggi og innanstokksmuni.
Þá eru kaffipokar þjóðráð, þeir skilja ekki eftir rákir á rúðunum heldur skila þeim glansandi fínum, án þess að káma fingurna.