Margir borða eftir svokölluðu lágkolvetnamataræði þessi dægrin, einnig þekkt sem ketó. Mataræðið snýst um að borða afar lítið af kolvetnum, svo sem sykri, brauði, bakkelsi, hrísgrjónum og pasta. Einnig eru margir ávextir illa séðir á ketó.
Nú styttist í jólahátíðina og laufabrauð, konfekt, góðar sósur og ljúffengir kolvetnaríkir réttir á hverju strái, hvort sem það er í heimahúsum eða á jólahlaðborðum. Þeir sem vilja halda í lágkolvetnamataræðið yfir jólin geta þó gert ýmislegt til að halda mataræðinu í lagi yfir hátíðarnar.
Þeir sem eru á lágkolvetnamataræði mega láta ofan í sig kjöt eins og þeir vilja en hins vegar eru sósur með hveitigrunni á bannlista. Því er best að halda sig frá slíkum sósum og velja aðrar í staðinn, til dæmis bernaise sósu. Þá er grænmeti í góðu lagi á ketó, sérstaklega dökkgrænt grænmeti, en hins vegar gætu þau verið matreidd með hráefnum sem eru ekki lágkolvetnavæn. Það ber að varast. Þá ættu ketóliðar að halda sig frá kartöflum, bæði sætum og venjulegum, sætum drykkjum, vissum mjólkurvörum og grænmeti með mikilli sterkju.
Sjá einnig: Þrjár mjólkurvörur sem geta rústað ketó mataræðinu þínu.
Ef ykkur er boðið í mat og hafið áhyggjur af því að of margt verði á boðstólnum sem er ekki ketó, þá er um að gera að koma með eitthvað heimalagað. Gestgjafarnir verða örugglega himinlifandi með það.
Það er best á lágkolvetnamataræði að hafa matinn eins hreinan og hægt er. Því er tilvalið að hafa jólamatinn frekar einfaldan. Einhvers konar kjötmeti eða fiskur, grænt grænmeti og lítið af lágkolvetnavænni sósu. Þá er líka hægt að leika sér með einfalda eftirrétti eins og þeyttan rjóma með jarðarberjum eða ketóvæna ostaköku.
Vinir og ættingjar gætu átt í erfiðleikum með að þið séuð á lágkolvetnamataræði yfir jólin og jafnvel ekki skilið af hverju í ósköpunum þið veljið að fara þessa leið. Hunsið þessar neikvæðisraddir því þið hljótið að vera að gera þetta til að líða betur. Þetta er ykkar ákvörðun, ykkar líkami.
Þeir sem borða eftir ketó mataræðinu geta leyft sér smá kolvetni yfir daginn, þó lítið magn sé. Veljið því kolvetnin varlega og reynið að nýta kvótann í eitthvað sem ykkur finnst virkilega, virkilega gott. Og munið að njóta hvers bita.
Auðvitað er yndislegt að koma saman í góðra vina hópi og fagna jólunum með dýrindis mat. Ef það reynist ykkur hins vegar erfitt að vera umkringd mat sem þið eruð að reyna að forðast er gott að finna sér eitthvað að gerast. Setjist niður með börnunum og hjálpið þeim að setja saman nýja dótið, farið út í snjó kast ef jólin verða hvít eða farið í góðan göngutúr til að fylla lungun af hreinu lofti. Það svínvirkar.