fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Hekla heldur sterkri stöðu á markaði: Stærst umboða í rafknúnum bifreiðum og með tvo vinsælustu bílana á einstaklingsmarkaði

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 5. mars 2020 12:00

Mitsubishi Outlander PHEV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hekla hóf árið með sterkri markaðshlutdeild fyrsta mánuð ársins og heldur áfram á afar góðu róli eins og tölur frá febrúar bera með sér. Hekla er með 25% markaðshlutdeild á heildarmarkaði fólks- og sendibíla sem er 12 prósentustigum hærra en á sama tíma í fyrra þrátt fyrir að fólksbílamarkaðurinn hafi dregist saman um 15%. Þá er Hekla í 1. sæti í sölu til einstaklinga með 24,4% hlutdeild og í 2. sæti í sölu til fyrirtækja og bílaleiga. Heilt yfir er mikill byr með vörumerkjunum fjórum; Audi, Volkswagen, Skoda og Mitsubishi, ekki síst þegar kemur að vistvænum bifreiðum.

Meðal hreinna rafbíla slær Audi öðrum merkjum við með 18,7% allra seldra rafbíla og Volkswagen er í 2. sæti í sölu rafbíla með tæpa 15% hlutdeild. Þegar horft er á heildarsölu raf- og tengiltvinnbíla á árinu eru Heklumerki áberandi vinsælust og samtals eru Audi, Volkswagen og Mitsubishi með yfir 37% af heildarsölu slíkra bíla.

Audi e-tron.

Mitsubishi leiðir áfram tengiltvinnbílamarkaðinn með Outlander PHEV sem er með 27,7% hlutdeild og hann er jafnframt mest seldi bíllinn til einstaklinga á Íslandi. Í öðru sæti yfir mest selda bíla til einstaklinga í mánuðinum er hinn alrafmagnaði Audi e-tron. Þess má svo geta að Hekla er með 92,8% hlutdeild þegar kemur að metanknúnum bifreiðum.

„Við erum ákaflega stolt af árangri okkar í sölu á vistænum bílum og það er margt spennandi á döfinni í þeim efnum sem við teljum að geti styrkt enn frekar þetta góða gengi. Til að nefna dæmi þá er tengiltvinnbíllinn Skoda Superb iV væntanlegur til okkar sem og rafbílinn Skoda Citigo e iV. Þá hefur Volkswagen kynnt nýja rafbíla á betra verði og nú síðast e-up og e-Crafter ásamt því að það styttist í komu ID. rafbílalínunnar“ segir Gunnar Smári Eggertsson Claessen vörustjóri hjá Heklu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum