fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

EuroMiladent: „Sparaði tvær og hálfa milljón í tannlæknakostnað“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 10. ágúst 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil aukning hefur orðið síðustu ár á því að Íslendingar sæki sér tannlæknaþjónustu utan landsteinanna og ekki að ástæðulausu. Í fyrsta lagi er það mun ódýrara enda er kostnaðurinn þar í yfirbyggingu, eins og launakostnað tannlækna, töluvert minni en á Íslandi. Í öðru lagi eru gæðin á þjónustunni fyrsta flokks. Í þriðja lagi er gríðarlegur tímasparnaður fólginn í flóknari tannviðgerðum erlendis. Ferli sem getur auðveldlega tekið mörg ár á Íslandi vegna sárs skorts á sérfræðingum, tekur t.d. eingöngu jafnlangan tíma og það þarf að taka hjá EuroMiladent í Gdansk í Póllandi. Tannlæknastofan hefur upp á síðkastið tekið fagnandi á móti íslenskum gestum sem eru í leit að lausn á tannvandamálum sínum og hefur sent heim fjöldann allan af ánægðum viðskiptavinum með bros á vör.

Reynsla, gæði og færni

EuroMiladent hefur tíu ára reynslu á sviði ferðatannlækninga og eru helstu viðskiptavinir stofunnar frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Íslandi. EuroMiladent fékk viðurkenningu frá tímaritinu Forbes Diamonds 2016 fyrir framúrskarandi vöxt á árinu en í Gdansk rekur EuroMiladent fjórar tannlæknastofur. Á hverri stofu eru reynslumiklir og menntaðir tannlæknar sem eru afar færir í sinni sérgrein. Erlendir viðskiptavinir nota 2–3 stofur í hverri ferð og eftir fyrstu skoðun er þeir úthlutaður sá tannlæknir sem mun sjá um að klára ferlið með viðskiptavininum. Dr. Dominik Łoś, sérfræðingur í tannlæknaþjónustu, eigandi stofunnar og stofnandi Miladent, er einn sá færasti í Gdansk þegar kemur að implöntum, en hann hefur sett upp yfir 4.000 slíka. Hann sér um að þjálfa tannlækna EuroMiladent í Póllandi og erlendis á sviði stoðtækja og ígræðslu. Tannlæknar EuroMiladent hafa þjónustað yfir 60.000 sjúklinga, sett upp 8.000 implanta og hannað um 5.000 stoðtækni-yfirbyggingar. EuroMiladent ábyrgist alla þá vinnu sem þeir gera á viðskiptavinum sínum.

Dr. Dominik.

Ferlið hjá EuroMiladent er afar einfalt

„Best er að byrja á að skoða flug og tímasetningar sem henta hverjum og einum og hafa svo samband við okkur í síma 830-0388 eða í gegnum email á tannlaeknatjonusta@gmail.com. Ég mun svara öllum fyrirspurnum og gera ráðstafanir með tímapantanir hjá tannlæknunum hjá EuroMiladent. Ég mæli með að vera úti í a.m.k. þrjá heila virka daga ef um að ræða skoðun, litlar eða stærri aðgerðir þar sem hægt er að gera mikið á svona stuttum tíma og t.d. tekur einn tannlæknatíma að setja implant í. Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera á 3–4 dögum. Í öllum hópferðum okkar, sem eru alltaf um fjórir heilir virkir dagar, hefur fólk alveg fengið allt að 24 krónur, en auðvitað er það smá álag á góminn,“ segir Dominika Majewska, íslenskur túlkur og leiðsögumaður á vegum EuroMiladent á Íslandi.

Dominika Majewska.

Fáðu grófa kostnaðaráætlun út frá símamynd

Það er engin þörf á að renna blint í sjóinn. „Hægt er að fá nokkuð nákvæma kostnaðaráætlun áður en ákveðið er að fljúga út með því að senda okkur röntgenmynd af heilgóm. Myndin fæst hjá einum af tannsérfræðingunum á Íslandi. EuroMiladent er þó ekki í samstarfi við íslenska tannlækna. Með myndinni geta tannsérfræðingarnir úti metið stöðuna á tönnunum og hvað þurfi að gera. Einnig er hægt að senda okkur ljósmyndir, t.d. úr símanum, en þær verða að vera í fókus. Út frá þeim getum við gefið upp gróflega áætlaðan kostnað út frá útliti og engu öðru. Við reynum alltaf að senda frá okkur allar kostnaðaráætlanir innan 48 klst. Allar kostnaðaráætlanir eru gefnar með fyrirvara um breytingar, en eftir skoðun á stofunni úti í Póllandi standast þær í 99% tilfellum.“

EuroMiladent býður einnig upp á tannréttingar. „Það hafa þónokkrir komið til okkar að fá teina, en það fer allt eftir tegund teinanna hversu oft þarf að fara út í skoðun og strekkingu. Til að fá nánari upplýsingar um verð og teina þarf alltaf að fara út og hitta sérfræðing.“

Vinsælar hópferðir

Dominika sér um vinsælar hópferðir EuroMiladent frá Íslandi. Innifaldar eru fríar leigubílaferðir til og frá flugvellinum sem og í alla tannlæknatíma. „Þetta er vinsælt hjá þeim sem eru að koma í fyrstu skoðun og vilja kynna sér staðhætti í öruggu umhverfi. Hópferðirnar eru líka vinsælar hjá þeim sem tala litla sem enga ensku. Fólk finnur aukið öryggi þegar það getur tjáð sig á móðurmálinu en öll þjónusta og samskipti eru á íslensku.“ Dominika er til staðar allan sólarhringinn íslenskum viðskiptavinum til halds og trausts og aðstoðar með allt.

Næsta hópferð með Dominiku verður 17.–22. ágúst. „Líklega verður ferð í september þar sem íslenskur túlkur verður á staðnum og túlkar fyrir þá sem vilja. Svo verða fleiri ferðir í haust. Allar upplýsingar um næstu ferðir er að finna á Facebook: Tannlæknaþjónusta – EuroMiladent Gdansk. Þeir sem eru öruggir í að ferðast og tjá sig auðveldlega á ensku geta farið út hvenær sem er. „Þá panta ég fyrir fólk tannlæknatímana en á staðnum tekur á móti þeim indæl stelpa að nafni Weronika sem talar ensku og aðstoðar með allt.“ Þess má geta að EuroMiladent tekur ekki þátt í ferðakostnaði.

 

16 ára fékk implant

Fólk á öllum aldri með alls kyns tannvandamál nýtir sér tannheilsuferðir sem þessar. „Þetta er langmest fólk sem hefur þörf á miklum tannviðgerðum og aðgerðum, þar sem sparnaðurinn er oft gífurlegur þrátt fyrir kostnað í flug og gistingu. Þó eru líka margir sem skella sér í frí til Gdansk og nýta sér fría skoðun hjá okkur. Stundum þarf ekkert að gera og stundum þarf bara að laga smá skemmd. Við tökum á móti öllum, hvort sem þeir þurfa einfalda tannhreinsun eða heilgóm. Yngsti einstaklingurinn sem hefur nýtt sér þjónustu okkar var 16 ára. Hann þurfti implant sem var ekki niðurgreidd aðgerð á Íslandi.“

Sparaði 2.500.000 krónur

„Það er gífurlegur verðmunur á tannlæknaþjónustu á Íslandi og í Póllandi og er hægt að spara sér allt að 80% af tannlæknakostnaði hjá EuroMiladent. Í síðustu hópferð okkar sparaði einn einstaklingur sér 2.500.000 krónur sem er gríðarlega mikil upphæð. Svo má ekki gleyma því að Gdansk er ótrúlega falleg borg með mikla sögu og hefur upp á margt að bjóða.“

 

Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook: Tannlæknaþjónusta – EuroMiladent Gdansk

Sími: 830-0388

Netpóstur: tannlaeknatjonusta@gmail.com

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum