fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Allt seldist upp síðustu helgi – Enn stærra núna um helgina!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 14. júlí 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavik Street Food hefur betur hamrað götubitamenninguna inn í þjóðarsál Íslendinga. „Það hefur verið ótrúlegt að sjá þróunina frá því við vorum með fyrstu götubitahátíðina okkar, BOX, í Skeifunni 2018. Okkur gjörsamlega rigndi niður og ég held að svunturnar hjá þeim sem voru með okkur séu enn að þorna. Við sáum að þrátt fyrir bleytu og gráma mætti þónokkuð af fólki og við fílefldumst í sannfæringu okkar um að götubitamenningin ætti klárlega heima hér á landi,“ segir Róbert Magnússon, einn eigenda Reykjavik Street Food.

Það seldist bara allt upp!

Í fyrra var haldin hverfakosningin Hverfið okkar á vegum Reykjavíkurborgar þar sem hugmyndin um matarmarkað var í fyrsta sæti hjá Laugardælingum. „Í samstarfi við Reykjavíkurborg héldum við stóran matarmarkað í Laugardalnum síðustu helgi. Þangað mættu fjölbreyttir söðuaðilar með ýmist hrávöru beint frá býlum, smærri matvælaframleiðendur sem og matarvagnar með gómsætan götubita. Þetta gekk algerlega vonum framar og hátt í 10.000 manns mættu í dalinn. Það seldist upp hver einasta matarögn á laugardeginum, tveimur klukkustundum áður en markaðnum var lokað. Á sunnudeginum mættu söluaðilarnir betur búnir undir mannflóðið með meira magn af mat. Samt kláruðu þónokkrir allt á sunnudeginum líka.“

Íslenskt sinnep, alvöru wasabi og margt fleira spennandi næstu helgi

Matarmakaðurinn Í Laugardal snýr aftur um helgina og bætast við enn fleirri söluaðilar á markaðinn. Helgina 13. og 14. júlí verður matarmarkaðurinn haldinn í Laugardalnum. „Þetta verður langstærsti matarmarkaður sem haldinn hefur verið á Íslandi. Yfir 20 söluaðilar mæta og má líta og smakka ýmislegt fjölbreytt góðgæti. Ásamt ýmsum gómsætum götubita verður til dæmis hægt að næla sér í íslenskt sinnep, grænmeti beint frá býli, þarna verða íslenskir kaffigerðarmenn og margt fleira. Einnig verða fáeinir glænýir aðilar með bás á markaðnum og verður spennandi að sjá hvernig þeir standa sig. Við vonumst til þess að gera matarmarkaðinn að árlegum viðburði og búumst við að þetta muni stækka með okkur. Markaðurinn verður staðsettur undir suðurenda áhorfendastúkunnar á Laugardalsvelli.“ Viðvera söluaðila getur verið mismunandi eftir dögum.

Þeir aðilar sem hafa staðfest komu sína á markaðinn þessa helgina eru :

Vagnar: Reykjavik Chips, Tacoson, Gastro Truck, Lobster Hut, Tasty, Viking Trukkur, Prikið Trukkur, Fish And Chips, Senis’s og Valhöll pylsugerð.

Básar: Kvörn, Pönnukökuvagninn, Kátt á klambra, Bera Hot Sauce, Bændur í bænum, Frú Lauga, Jömm, Veganbúðin, Sælkerasinnep Svövu, Nordic Wasabi og Sauðfjárbúið – Ytra Hólmi.

Markaðurinn er opinn frá klukkan 12-18 báða dagana og ef veður verður óhagstætt þá munum við færa markaðinn að hluta til inn í skjól.

„Besti Götubiti Íslands 2019“

Margir hafa velt fyrir sér hvers vegna búið er að mála stéttina á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn (á móti Kolaportinu), en helgina 19.–21. júlí verður þar haldin fyrsta götubitahátíðin á Íslandi. „Þarna verða yfir 20 söluaðilar með heilmikið af fjölbreyttum og spennandi götubitum. Hugmyndin er að sameina þá fjölmörgu matarvagna og söluaðila sem bjóða upp á spennandi götubita á einni stórri hátíð. Þetta verður allt inni í sérútbúnum gámum, sem tengir hátíðina enn betur við höfnina.“ Að auki verður haldin fyrsta götubitakeppnin á Íslandi, „Besti götubiti Íslands 2019“. Aðilar frá European Street Food Awards mæta og dæma í keppninni og sigurvegarinn tryggir sér þátttökurétt í Evrópukeppninni í Malmö í Svíþjóð í lok september þar sem keppt verður um besta götubitann í Evrópu.

Markmið Reykjavik Street Food hefur ávallt verið að styrkja götubitamenninguna á Íslandi, sem og að kynna íslenskan götubita erlendis. „Með framtaki okkar viljum við hvetja fólk til þess að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi. Fólk getur þá mætt á einn stað og upplifað blómstrandi flóru í fjölbreyttri og framandi matarmenningu með Reykjavik Street Food. Íslendingar eiga svo mikið af hæfileikaríkum kokkum og matgæðingum sem eiga klárlega eftir að koma íslenskri götubitamenningu á kortið úti í heimi. Þá viljum við einnig veita nýjum aðilum sem eru að koma inn í götubitageirann stökkpall til þess að koma sér af stað og vonandi halda áfram rekstri. Það er gaman að segja frá því að Jömm, Indican og Kore komu allir fyrst fram á sjónarsviðið hjá Reykjavik Street Food og hafa þeir komist inn í mathallir þar sem þeir vaxa og dafna í dag,“ segir Róbert.

Fylgstu með Reykjavik Street Food á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum