Filmarinn veitir alhliða þjónustu í merkingum og filmum fyrir hvaða tilefni sem er. „Við sjáum um allt sem lýtur að merkingum, filmum og sandblæstri. Þá erum við með margar gerðir af filmum eftir því hvert verkefnið er. Þykkar plastfilmur, þunnar, glærar gúmmífilmur, mattar, glansandi og allt þar á milli. Við sjáum mikið um að merkja fyrirtækjabíla, allt frá því að setja lógó á hliðina og upp í að filma allan bílinn hátt og lágt,“ segir Oleg Cherepkov, eigandi Filmarans.
Mattir bílar og krómaðir
Upp á síðkastið hafa margir valið að láta setja matta filmu á bílana sína eða jafnvel glansandi krómfilmu. „Þetta kemur mjög vel út fyrir þá sem vilja hafa bílana örlítið öðruvísi. Þetta ver líka lakkið undir og lengir endingartíma þess,“ segir Oleg.
Lakkvarnarfilma
Filmarinn býður einnig upp á stórsniðuga lausn fyrir bíleigendur. „Við erum með nokkuð sem nefnist „paint protection film“ eða lakkvarnarfilma. Þetta er sérstaklega sniðug lausn fyrir nýja bíla. Filman sem er notuð er algerlega gegnsæ og úr gúmmíefni. Hún er sett á fleti sem eru sérlega viðkvæmir fyrir rispum eins og til dæmis í kringum skráargöt og hurðarhúna, framan á bílinn, húddið, á spegla og fleiri fleti. Filman er nærri því ósýnileg og ver fletina svo lakkið undir skemmist ekki. Þegar filman fer að láta á sjá er auðvelt að koma með bílinn og láta skipta um. Það er til dæmis vinsælt hjá ferðaþjónustufyrirtækjum að verja húddið á bílum sem er mikið ekið á malarvegum. Filman ver þá slitfleti vel gegn steinkasti og lengir til muna þann tíma sem bíllinn lítur vel út.“
Sólarfilmur
Einnig býður Filmarinn upp á sólarfilmur fyrir bíla, heimili og fyrirtæki. Sólarfilmur taka glampa og hita frá sól, allt að 80%, og getur skipt sköpum þar sem rúður eru stórar. Einnig síar filman frá allt að 99% af hættulegum UV-geislum sólarinnar
Merkja og filma allt sem hægt er!
Filmarinn sér einnig mikið um að merkja verslanir og fyrirtæki. „Við merkjum mikið búðarglugga og framleiðum skilti fyrir verslunareigendur. Við getum sett filmu á næstum hvað sem er. Fólk er m.a. að koma til okkar með heilu eldhúsinnréttingarnar og þær verða sem nýjar,“ segir Oleg.
Nánari upplýsingar má finna á filmarinn.is
Facebook: filmarinn og tinticeland
Axarhöfði 14, 110 Reykjavík
Sími: 897-0745