Höfðahöllin er rótgróin bílasala, staðsett að Funahöfða 1, í hjarta gamla bílasöluhverfisins á Höfðanum. „Við erum mitt á milli Bílanausts og AB varahluta, en hér hafa verið bílasölur í hátt í 40 ár,“ segir eigandi bílasölunnar, Indriði Jónsson.
Alveg ólæknandi ástand
„Sjálfur hef ég verið í þessu í um tíu ár og rekið bílasölu frá 2009. Áður var ég að vinna í 27 ár í banka en ég færði mig yfir í bílabransann því ég fékk það uppáskrifað að ég væri með ólæknandi bíladellu. Vegna þessa ástands míns hef ég öðlast haldgóða þekkingu á þeim bílum sem ég tek að mér að selja,“ segir Indriði.
Skjalafrágangur gegn lágri þóknun
Höfðahöllin býður upp á hentugan kost fyrir þá sem eru að kaupa og selja bíla. „Við tökum að okkur skjalafrágang á öllum bílaviðskiptum gegn lágri þóknun, séu aðilar búnir að koma sér saman um viðskipti. Við útvegum kaupendum einnig ýmiss konar fjármögnun vegna bílakaupanna. Við erum að ganga frá sams konar skjölum og sölupappírum á hverjum degi og ættum því að kunna þetta.“
Innflutningur og sala á notuðum á bílum
„Við seljum notaða bíla fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki, hvort heldur er fyrir bílaumboð eins og Suzuki og Brimborg eða bílaleigur.“ Höfðahöllin hefur einnig flutt inn nýlega bíla með góðum árangri í nokkur ár og oft boðið upp á spennandi bíla á frábærum verðum.
Bjartur salur og rúmt útisvæði
„Það er unun að koma til okkar að skoða bílana sem við erum að selja hverju sinni. Við bjóðum upp á glæsilegan, bjartan innisal fyrir um 14–15 bíla og gott og vel hirt útisvæði. Það er því auðvelt að skoða bíla hjá okkur, jafnvel þrátt fyrir snjóhörkur.“
Komdu í bíló!
„Við bjóðum alla velkomna til okkar að skoða úrvalið en bílana má einnig skoða á heimasíðu okkar BILO.is en við leggjum mikið upp úr góðri myndatöku á bílunum sem eru til sölumeðferðar hjá okkur. Við förum ýmsar leiðir til að kynna úrvalið, t.d. erum við mjög virkir á Facebook: Bílasalan Höfðahöllin, þar sem við eigum metfjölda aðdáenda,“ segir Indriði.
Bílasalan Höfðahöllin, Funahöfða 1.
Nánari upplýsingar á bilo.is eða í síma 567-4840.