fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Stjörnusól: Skelltu þér í sólina án flugmiða

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 1. febrúar 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ertu komin/nn með ógeð á skammdeginu? Finnst þér lýsi vont? Gleymirðu ítrekað að taka inn D-vítamín perluna á morgnana? Vantar þig kannski bara smá hita í kroppinn? „Við tókum við rekstrinum hjá sólbaðsstofunni Stjörnusól í fyrra og gerðum nokkrar þarfar breytingar. Í dag sækist fólk í auknum mæli eftir fleiru en sólbrúnku þegar það leggst inn í ljósabekk. Ljósabekkir í dag eru líka svo miklu meira en þeir voru í gamla daga. Sumir vilja klassíska sólbrúnku, aðra vantar að auka náttúrulega D-vítamín framleiðslu líkamans og enn aðrir sækjast eftir hitaáhrifunum til þess að lina sársauka vegna vefjagigtar eða vöðvabólgu,“ segir Páll Ágúst Aðalheiðarson, eigandi Stjörnusólar.

 

Megasun Alpha Deluxe: D-vítamínbúst í skammdeginu

„Við erum með tvo nýlega bekki frá Megasun Alpha Deluxe. Bekkurinn býður upp á valmöguleika á að stilla ljósatímann algerlega eftir þörfum hvers og eins. Í bekkjunum eru sérstakar perur sem gefa frá sér aukna UVB-geisla, sem eru þeir geislar sólarinnar sem eru nauðsynlegir til D-vítamín framleiðslu. Einnig eru öflugar Ruby-Collagen-Booster LED-perur staðsettar umhverfis andlitið. Þær gefa frá sér geisla sem vinna gegn öldrun húðar, veita aukinn raka, auka blóðflæði um húðina og hjálpa til við slökun og hreinsun. Bekkurinn er með stillingum fyrir hitastig, gerð sólargeisla, þ.e. UVA eða UVB eftir því hvort sóst er eftir sólbrúnku eða aukinni D-vítamín framleiðslu, og margt fleira. Bekkurinn getur gefið frá sér slakandi aroma-ilmefni, eða spreyjað þægilegum vatnsúða yfir líkamann verði manni of heitt. Svo er rúsínan í pylsuendanum sú að það er hægt að hlusta á tónlist meðan á tímanum stendur. Þú getur m.a. hlustað á slökunartónlist sem er innbyggð í bekkinn eða tengst bekknum með símanum gegnum Bluetooth og notið eigin tónlistar,“ segir Páll.

Það er allra meina bót að skella sér í smá sólbað.

Kollagen: undraefni líkamans

Stjörnusól er með tvo kollagenbekki sem gefa frá sér geisla sem auka kollagenframleiðslu húðarinnar. Áhrifin eru þau að slit minnkar og húðin verður stinnari sem gefur unglegra útlit. Einnig geta geislarnir dregið úr verkjum vegna slitgigtar. Kollagen er algengasta prótínið í líkamanum og er það efni í húðinni sem veitir unglegt og frísklegt útlit.

Collagen bekkur
Kollagenbekkur.

Innrauð sauna fyrir mjúka liði og aukna brennslu

„Það allra nýjasta á stofunni hjá okkur er svo Infrared sauna, eða innrauð þurrgufa. Það er engin gufa inni í klefanum heldur hitalampar sem gefa frá sér innrauða ljósgeisla og hita klefann upp í 50–60°C. Geislarnir hjálpa til við svefnvandamál, sársauka vegna vefjagigtar, vatnslosun, þyngdartap og auka brennslu. Einnig mýkja þeir liðina og strekkja á húðinni. Tíminn er um 20–30 mínútur og mælt er með tvöföldum tíma í hvert skipti fyrir hámarksárangur,“ segir Páll.

Infrared sauna klefi
Innrauð sauna.

Drottningin

Fyrir þá sem sækjast aðallega eftir sólbrúnku og/eða hita er Stjörnusól með fimm klassíska sterka ljósabekki frá Luxura X10. „Luxura X10 er réttnefndur drottning ljósabekkjanna enda er hann stór og þægilegur með nóg af plássi. Það er unun að láta sólargeislana leika um sig. Bekkurinn getur gefið frá sér slakandi ilmolíur, maður getur spilað tónlist að eigin vali, spreyjað hressandi misturúða eða blásið köldu lofti til kælingar,“ segir Páll.

Nánari upplýsingar á stjornusol.is og á Facebook-síðunni: Stjörnusól

Hægt er að bóka tíma hjá Stjörnusól á netinu á stjornusol.is/hafnarfjordur/boka-tima.

Það er hægt að kaupa tímakort hjá okkur í Stjörnusól, Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði.

Þess má geta að tímakortin renna ekki út á milli ára.

Sími: 555-7272

Netfang: hafnarfjordur@stjornusol.is

Opið alla daga frá 10–22

Tilboð á sunnudögum: Stakur tími eingöngu 1.200 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum