fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Íslenskur hamborgari á lista yfir bestu borgara heims!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 1. nóvember 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðillinn Big 7 Media hefur valið fimmtíu bestu borgara heims, en á listanum eiga Íslendingar fulltrúa. Í 31. sæti á listanum er hamborgarinn á Block Burger á Skólavörðustíg í Reykjavík. Í umsögn um borgarann stendur:

„Almennileg borgarabúlla sem einblínir á að búa til heimsklassa borgara. Engin þörf á alls kyns áleggi eða stórum skömmtum. Bara hæfilega stór borgari sem tikkar í öll boxin.“

Ef lýsa ætti hamborgurunum á Block Burger í aðeins einu orði þá væri það orðið ferskleiki. Kjötið í borgurunum er sérvalið 100% íslenskt úrvals ungnautakjöt sem hefur fengið hámarksmerjun við bestu aðstæður. Kjötið sem Block Burger fær afhent frá sínum framleiðanda er síðan skorið niður, hakkað og búnar til úr því 120 gramma kúlur sem fara í hamborgarana á staðnum. Ferskara og gæðameira verður hamborgarakjöt ekki. Hamborgarabrauðin koma daglega og eru sérbökuð fyrir Block Burger. Annað sem gefur Block Burger-hamborgurunum sérstöðu er Block-sósan sem gerð er á staðnum.

Block Burger hóf starfsemi í ágúst árið 2015 og er á sama stað og veitingastaðurinn Grænn kostur var áður, eða í bakhúsi að Skólavörðustíg 8. Opið er alla virka daga frá kl. 11 til 21 og um helgar frá kl. 12 til 21.

Borgari vikunnar

Oft er líka í boði borgari vikunnar. Þar má nefna hamborgara eins og Bearnaise Block, BBQ Block, Monkey Block sem er með hnetusmjöri og banönum, Double Cheese Block og fleiri. Margt spennandi er framundan í þessum sérréttum en fólk getur fylgst með borgara vikunnar á Facebook-síðu og Instagram-síðu Block Burger.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum