fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

VIP Dekk: Eru dekkin þín í lagi?

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 1. febrúar 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

VIP Dekk er orðið vel þekkt fyrirtæki á íslenskum dekkja- og felgumarkaði en það hefur verið starfrækt í 6 ár að Eldshöfða 16. Með auknum umsvifum hefur fyrirtækið flutt starfsemi sína í nýtt og stærra 400 fermetra húsnæði að Fosshálsi 7. VIP Dekk býður upp á faglega þjónustu þegar kemur að hjólbörðum og öllu sem þeim fylgja. Fyrirtækið sér meðal annars um umfelgun, ballanseringu, dekkjaviðgerðir og býður upp á dekkjahótel fyrir sumar- eða vetrardekkin. „Við seljum einnig allt sem tengist hjólbörðum á bílum og mótorhjólum, hvort sem það eru hjólbarðar, felgur, hristiskynjarar, felgurær, felgumiðjur eða annað, við erum með þetta allt,“ segir Vlad Lavrenov hjá VIP Dekk.

 

Vertu öruggur í færðinni

Það hefur ekki farið framhjá neinum sá snjóþungi sem verið hefur í Reykjavík undanfarið, en slíkt færi getur haft töluverð áhrif á aksturseiginleika bifreiða og enn verri áhrif á hjólbarðana. Vlad mælir með að fólk drífi sig á verkstæðið að láta skoða ástandið á dekkjum. „Við veitum fyrsta flokks þjónustu og metum ástandið fljótt og örugglega. Svo erum við ráðleggjandi um framhaldið,“ segir Vlad.

VIP Dekk

Sannfærðir um gæði Fondmetal

Markmiðið er að sjálfsögðu að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu og aukið vöruúrval í dekkjum og felgum. VIP Dekk selur, meðal annarra merkja, felgur frá framleiðandanum Fondmetal sem Íslendingar ættu að kannast vel við frá fyrri tíð. Fondmetal er ítalskur framleiðandi og er einn af OE-framleiðendum fyrir bílaframleiðendur. Því eru kröfur um gæði og endingu mun meiri en hjá flestum öðrum framleiðendum.

VIP Dekk

„Rætur Fondmetal má rekja til Formúlu 1 kappakstursins en Fondmetal var með sitt eigið lið í þeirri deild í áraraðir. Sérhæfing í sérstaklega léttum felgum og einstaklega mikilli nákvæmni við framleiðslu hefur því verið meðal þeirrar reynslu sem Fondmetal hefur haft að leiðarljósi er kemur að framleiðslu á öllum sínum felgum. Tveggja ára ábyrgð er á göllum og tæringu á öllum þeirra felgum og erum við því sannfærðir um gæði vörunnar.“

VIP Dekk

Við höfum verið að selja nýja línu frá Fondmetal sem heitir Inspired og er tileinkuð Audi, BMW, Skoda, Volkswagen og Mercedes. Þessi lína kom út á síðasta ári og hefur fengið svakalega góðar móttökur,“ segir Vlad.

Enn frekari stækkunar línunnar er að vænta á þessu ári sem og nýrrar gerðar af „Tuning“-felgu sem er sérstaklega sterk og létt og ætluð kraftmeiri bílum.

VIP Dekk

VIP Dekk ehf. býður faglega hjólbarðaþjónustu fyrir fólksbíla og jeppa og selur nýja hjólbarða frá GoodYear, Dunlop, Fulda, Sava, Toyo, Pirelli, BFGoodrich og Sailun.

Að auki bjóðum við felgur til sérpöntunar á góðu verði frá Gmp Italia, CMS Wheels, Oz Racing og Bbs.

„Nú geta allir viðskiptavinir okkar komið til okkar og notið kaffisopans á meðan skoðaðar eru flottar felguútstillingar frá okkar framleiðendum í nýjum og stærri húsakynnum,“ segir Vlad.

VIP Dekk

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni vipdekk.is og á Facebook-síðunni vipdekkiceland.

VIP Dekk ehf. er staðsett að Fosshálsi 7 110 Reykjavík.

Endilega hafðu samband við okkur í síma: 571-9111 eða 690-9111

Netpóstur: vipdekk@internet.is.

Opið er virka daga frá 08–18 og laugardaga frá 10–13.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum