fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Sýning og kvöldverður – tilvalin jólagjöf

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 30. nóvember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spennandi sýningar fram undan á Sögulofti Landnámsseturs

Grettir og Auður djúpúðga snúa aftur og tvær sýningar bætast við.

Grettis saga Einars Kárasonar og Auðar saga Vilborgar Davíðsdóttur hafa notið gífurlegra vinsælda á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Sýningum átti að ljúka í haust en til að koma á móts við þá sem þurftu frá að hverfa verða nokkrar sýningar eftir áramót. Auk þess verða tvær nýjar sýningar frumsýndar á Söguloftinu;  FARÐU Á ÞINN STAÐ eftir Theodór Þórðarson (Tedda löggu) og Njálssaga Bjarna Harðarssonar.

 

Auðar saga djúpúðgu

Vilborg Davíðsdóttir heillaði áhorfendur upp úr skónum þar sem hún lagði með þá í ferðalag um slóðir Auðar djúpúðgu á Bretlandseyjum og í kjölfarið til eylandsins á enda veraldar. Saman við viðburðaríkt líf Auðar á Írlandi og Skotlandi fléttast atburður sem markaði upphaf landnámsins blóði: þrælauppreisn á suðurströnd Íslands. Sýningar í febrúar.

Landnámssetrið

laugardagur 2. febrúar kl. 20.00

sunnudagur 3. febrúar kl. 16.00

laugardagur 16. febrúar kl. 20.00

sunnudagur 17. febrúar kl. 16.00

sunnudagur 10. mars kl. 16.00

 

Grettis saga Einars Kárasonar

Einar er sá listamaður sem hefur verið með flestar frumsýningar í Landnámssetrinu. Þetta er hans sjötta sýning en mörgum er enn í fersku minni frábær flutningur hans á Skáldinu Sturlu og Óvinafagnaði.

„Það sem Einar gerir best er hvernig hann tekur söguna saman, þjappar henni þannig að hún rúmist á tveim tímum og hvernig hann – um leið og hann styttir – túlkar hana og opnar hana fyrir manni án þess að fara nokkurn tíma offari í skýringum.“ (Silja Aðalsteinsdóttir TMM)  Sýningar í janúar.

Landnámssetrið

laugardagur 12. janúar kl. 20.00

sunnudagur 13. janúar kl. 16.00

laugardagur 9. febrúar kl. 20.00

sunnudagur 10. febrúar kl. 16.00

 

Farðu á þinn stað

Tedda löggu þarf ekki að kynna fyrir Borgfirðingum og margir landsmenn þekkja hann úr Laufskálanum í útvarpinu. Í þessari sýningu tekur  hann sjálfan sig til kostanna í sjálfsævisögulegum einleik þar sem ferðast er frá Kínahverfinu í Borgarnesi og alveg út á Ystu Nöf, þar sem hann nú býr. Hann rekur í máli og myndum ýmis atvik í samskiptum sínum við samferðafólk sitt, allt frá barnæsku og fram til vorra daga. Frumsýnt í janúar.

Landnámssetrið

laugardagur 19. janúar kl. 20.00 forsýning

laugardagur 26. janúar kl. 20.00 frumsýning

laugardagur 27. janúar kl. 16.00

föstudagur 1. febrúar kl. 20.00

laugardagur 16. febrúar kl. 16.00

laugardagur 23. febrúar kl. 20.00

sunnudagur 24. febrúar kl. 16.00

 

Njála Bjarna Harðarsonar

Bjarni Harðarson flytur sína Njálu þannig að nýr skilningur mun vitrast þeim sem eru reiðubúnir að opna bæði hug og hjarta fyrir fagnaðarerindinu.
Sunnlendingurinn Bjarni er alinn upp með Njálu sér við hjartastað. Hann þykist því þess umkominn að tala eins og sá sem valdið hefur þegar kemur að því að rýna og túlka þessa bók bókanna í íslenskri miðaldamenningu. Komið og ykkur mun opnast ný Íslandssaga. Frumsýnt í mars.

Landnámssetrið

laugardagur 2. mars kl. 20.00 frumsýning

sunnudagur 3. mars kl. 16.00

laugardagur 16. mars kl. 20.00

sunnudagur 17. mars kl. 16.00

 

Það er einfalt að kaupa gjafabréf á sýningarnar á Söguloftinu og hægt að bæta við kvöldverði sem gerir upplifunina enn eftirminnilegri. Best er að senda tölvupóst á landnam@landnam.is en einnig er hægt að kaupa miða á heimasíðu Landnámsseturs: www.landnam.is/viðburðir

 

„Fyrirbærið Söguloft er einstakt á heimsvísu, það þori ég að fullyrða, og starfsemin þar blómstrar, sem betur fer.“ (Silja Aðalsteinsdóttir TMM).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum