Fótboltaferðir ehf. er sérhæfð ferðaskrifstofa sem býður upp á ferðir á leiki í ensku úrvalsdeildinni, æfingaferðir til La Manga og Torrevieja og golfferðir til sömu staða. Gjafabréf hjá Fótboltaferðum eru frábær jólagjöf fyrir þá sem þyrstir í ævintýri og upplyftingu eftir áramótin.
Í fótboltaferðum er lögð áhersla á gistingu á góðum hótelum og vel staðsettum, þaðan sem gott aðgengi er á leikinn. Jafnframt er lögð áhersla á þægilegt flug. Þrátt fyrir þetta er verðið hagstætt. Ferðir á eftirfarandi stórleiki eru meðal annars fram undan hjá Fótboltaferðum snemma á næsta ári:
Liverpool – Leicester
Arsenal – Chelsea
Man. City – Arsenal
Man Utd. – Liverpool
Fjölmargir aðrir leikir eru í boði, sjá nánar á fotboltaferdir.is, ásamt upplýsingum um verð, flug og gististaði. Fyrir utan að bjóða upp á þær ferðir sem getið er um á vefsíðunni bjóða Fótboltaferðir einnig upp á þá þjónustu að sérsníða ferðir fyrir einstaklinga og hópa.
Æfingaferðir og golfferðir
Fótboltaferðir ehf. býður einnig upp á æfingaferðir og golfferðir til La Manga og Torrevieja. Þar er að finna nokkra af flottustu golfvöllum Evrópu og einn þeirra er endurhannaður af hinum fræga hönnuði Arnold Palmer. Nánari upplýsingar um æfingaferðirnar og golfferðirnar eru veittar í síma 851-1500.
Við ítrekum síðan að ítarlegar upplýsingar um allar fótboltaferðir er að finna á glæsilegri vefsíðu Fótboltaferða, fotboltaferdir.is.
Fótbolta-, æfinga- og golfferðir eru frábær jólagjöf. Hringdu í síma 851-1500 og fáðu upplýsingar um gjafabréf.