fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Litlu skrefin í átt að minni sykurneyslu

Of mikil sykurneysla gerir engum gott – Svona geturðu minnkað hana

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 28. maí 2017 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekkert launungarmál að margir neyta of mikils sykurs. Sykurneysla eykur líkur á þyngdaraukningu og tannskemmdum og getur auk þess aukið líkur á lífsstílstengdum sjúkdómum á borð við sykursýki, tegund 2. Það er því ýmislegt í húfi varðandi sykurneyslu, einkum og sér í lagi neyslu á viðbættum sykri sem bætt er í matvælin við framleiðslu þeirra. Næringarfræðingurinn Lisa Young gaf lesendum Business Insider á dögunum nokkrar ráðleggingar um það sem við getum gert til að takmarka sykurneysluna.


Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lestu innihaldslýsinguna

Mörgum, sérstaklega börnum, finnst gott að byrja daginn á því að fá sér morgunkorn. Til er ógrynni tegunda af morgunkorni og sumt inniheldur meiri sykur en góðu hófi gegnir. Young hvetur fólk til að kynna sér innihald morgunkornsins og lesa sér til um sykurmagnið. Ágætt er að nota þá þumalputtareglu að sykurmagnið í hverjum hundrað grömmum sé ekki meira en trefjainnihaldið í hverjum hundrað grömmum.


Forðastu sælgæti

Öruggasta leiðin til að forðast sykur og minnka neysluna er að borða ekki sælgæti. Sælgæti inniheldur mikinn sykur og margar hitaeiningar en er snautt af góðum næringarefnum. Í raun er engin ástæða til að leggja sér sælgæti til munns.


Drekktu kolsýrt vatn

Eins og sælgæti, er sykrað gos ekkert annað en innihaldslausar hitaeiningar. Samkvæmt nýlegum rannsóknum er sykurlaust gos, gos sem inniheldur sætuefni, ekki endilega betra en sykraða gosið. Góð leið til að minnka sykurneysluna er að forðast sykraða gosdrykki og leggja heldur áherslu á að drekka kolsýrt vatn með bragðefnum. Íslenskum neytendum stendur mikið úrval kolsýrðra vatnsdrykkja til boða en engu að síður er gott að skoða innihaldslýsinguna. Sumir þeirra innihalda sykur.


Borðaðu reglulega yfir daginn

Þegar við verðum mjög svöng eigum við það til að missa okkur hreinlega í óhollustunni. Það getur verið freistandi að ná sér í sælgætisstykki þegar hungrið sverfur að. Góð leið til að forðast þetta er að borða reglulega yfir daginn til að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Ef það er gert verða freistingarnar viðráðanlegri.


Borðaðu ávexti og grænmeti

Ávextir innihalda vissulega sykur en þeir eru þeim kostum gæddir að innihalda trefjar sem hægja á upptöku sykurs úr smáþörmum í blóðrásina og auka á seddutilfinningu. Þá gefa ávextirnir okkur góð næringarefni og vítamín.


Borðaðu hreina jógúrt

Það eru ekki allar mjólkurvörur hollar þótt margar séu þær fitusnauðar. Jógúrt inniheldur oft talsvert magn af viðbættum sykri en það á þó ekki alltaf við. Hrein jógúrt er hollur kostur og talin góð fyrir meltinguna. Hún inniheldur tiltölulega lítinn sykur og það er hægt að nota hana í ýmislegt. Borða hana eina og sér, bæta ávöxtum eða múslí út í eða gera úr henni hollar sósur.


Mynd: 123rf.com

Borðaðu prótín

Young mælir með að fólk leggi það í vana sinn að innbyrða prótín með hverri máltíð. Eins og trefjar gera prótínin það að verkum að maður finnur lengur fyrir seddutilfinningu. Það veldur síðan því að maður er síður líklegur til að úða í sig óhollustu þegar hungrið sækir að. Mikilvægt er að borða prótínin jafnt yfir daginn.


Slepptu ávaxtasafanum

Ávaxtasafi inniheldur oft mikinn sykur og þar af leiðandi er betra að borða hreina ávexti, meðal annars vegna trefjanna eins og fjallað er um hér að framan. Trefjar eru góðar fyrir meltinguna, auka á seddutilfinningu og minnka þannig líkurnar á að við borðum of mikið. Engin slík handbremsa er fyrir hendi þegar við drekkum ávaxtasafann þar sem aðeins er um vökva að ræða.


Svart og sykurlaust

Kaffi er ómissandi þáttur í daglegu lífi margra. Til eru óteljandi útgáfur af kaffidrykkjum og á meðan uppáhellingin heima er skotheld og sykurlaus innihalda aðrar tegundir mikinn sykur. Sumum finnst gott að fá sér bragðbætandi efni í kaffið, svokallað kaffisíróp, sem gerir kaffið um leið sætara. Þá er hægt að fá alls kyns útfærslu á kaffihúsum sem sum hver inniheldur meiri sykur en sykruðustu gosdrykkirnir. Hafðu þetta í huga næst þegar þú pantar þér kaffi á kaffihúsi.


Mynd: prevention.com

Gerðu hristinginn heima

Besta leiðin til að vita hversu mikill sykur er í vörunni sem þú neytir er að búa hana til sjálfur. Þetta á til dæmis við um ávaxtaþeytinga eða hristinga (e. smoothie). Þegar við kaupum slíka drykki innihalda þeir oft talsverðan sykur til að gera þá meira aðlaðandi fyrir þá sem þeirra neyta. Góð leið til að komast hjá þessu er að blanda þessa drykki sjálfur. Hugmynd: Skerðu niður rauðrófur, avókadó, engifer, epli og banana og settu í blandara ásamt slatta af vatni og klaka. Þá ertu kominn með bragðgóðan, svalandi og hollan drykk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum