fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Verksýn ehf: Viðhald og endurbætur í öruggum höndum

Kynning

Ókeypis námskeið í undirbúningi viðhaldsframkvæmda

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 26. maí 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verksýn ehf. er tækniþjónusta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan. Hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar sem hafa yfirgripsmikla reynslu á þessu sviði. Verksýn sinnir einnig fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf með nýframkvæmdum. Um er að ræða almenna framkvæmdaráðgjöf, álitsgerðir, byggingastjórnun og hönnun mannvirkja. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2006 hefur starfsmönnum fjölgað jafnt og þétt og í dag eru átta starfsmenn hjá Verksýn.

Viðskiptavinir fyrirtækisins eru t.d. einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, fasteignafélög og húsfélög. Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á besta mögulega hátt með nýtingu þeirrar þekkingar og þess mannauðs sem fyrirtækið býr yfir.

Kerfið byggir á grunnforritum, er einfalt og þægilegt í notkun og afhendist tilbúið til skoðunar hjá skoðunarstofu.
Sér útbúið gæðakerfi fyrir byggingarstjóra og iðnmeistara, Kerfið byggir á grunnforritum, er einfalt og þægilegt í notkun og afhendist tilbúið til skoðunar hjá skoðunarstofu.

Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af störfum við mannvirkjagerð og við viðhald og endurbætur mannvirkja.

Verksýn starfar eftir gæðakerfi sem vottað er af Mannvirkjastofnun.

Fagþekking

Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf um viðhald fasteigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu á iðngreinum, sem er ein af helstu undirstöðum vandaðrar og faglegrar ráðgjafar.
Verksýn hefur á að skipa fjölda byggingafræðinga og iðnmeistara. Sérstök hæfni þeirra í greiningu á byggingarskemmdum og þekking á byggingatækni tryggir gæði í skipulagningu, útfærslu, rekstri og viðhaldi fasteigna.

Ástandsskoðun Verksýnar

Ástandsskýrsla er það tæki sem fasteignaeigendur og forsvarsmenn húsfélaga hafa til að leggja mat á viðhaldsþörf á hverjum tíma. Ástandsskýrslan gefur glögga mynd af viðhaldsþörf næstu árin og er áreiðanlegur grundvöllur ákvarðanatöku.

stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan.
Reynir Kristjánsson stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Árleg viðhaldsþörf fasteigna

Út frá reynslutölum er áætlað að 1–2% af verðmæti fasteigna þurfi til að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á hverju ári. Með því að grípa tímanlega inn í óhjákvæmilegt „hrörnunarferli“ er hægt að minnka framkvæmdakostnað verulega.

Lagnir

Viðhald lagna krefst vandaðs undirbúnings, enda er oft um mjög kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða. Við veitum ráðgjöf varðandi: grunn- og jarðlagnir, hita- og neysluvatnslagnir.

Ókeypis námskeið í undirbúningi viðhaldsframkvæmda

Verksýn býður stjórnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Farið er yfir feril viðhaldsframkvæmda á fjölbýlishúsum. Námskeiðin eru haldin að Síðumúla 1, Reykjavík, og eru opin öllum stjórnarmönnum húsfélaga, þeim að kostnaðarlausu. Skráning með tölvupósti á verksyn@verksyn.is eða í síma 517 6300.

Útboð

Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda þegar kemur að framkvæmdum. Verksýn býður út tugi framkvæmda á hverju ári. Með útboðsgögnum er tryggt að verktakar bjóði í verkið á sama grundvelli og eigendur eigi auðvelt með að meta tilboðin.

Reyndur umsjónaraðili

Þegar ráðist er í viðhaldsframkvæmdir er nauðsynlegt að hafa reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila með verkinu. Sem eftirlitsaðili tryggir Verksýn að verktaki sinni þeim skyldum sem á hann eru lagðar samkvæmt ákvæðum útboðsgagna:

  1. Að ábyrgir iðnmeistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði
  2. Fer yfir allar tryggingar verktaka
  3. Yfirfer tæknilegar upplýsingar
  4. Yfirfer verkáætlanir
  5. Eftirlit með framgangi framkvæmda
  6. Eftirlit með vinnubrögðum og umgengni
  7. Leysir úr óvissuatriðum
  8. Stjórnar verkfundum
  9. Ritar fundargerðir
  10. Fer yfir reikninga frá verktaka
  11. Hefur umsjón með úttektum
  12. Samskipti við íbúa
  13. Varðveitir gögn í 10 ár eftir verklok

Kostnaður við umsjón og eftirlit skilar sér til eigenda í hagkvæmni og meiri gæðum framkvæmda.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.verksyn.is

Verksýn ehf
Síðumúla 1, 108 Reykjavík
517 6300 – verksyn@verksyn.is

Ráðist var í miklar endurbætur á ytra byrði elstu álmunnar síðastliðið haust
Viðhald og endurbætur við Tækniskólann. Ráðist var í miklar endurbætur á ytra byrði elstu álmunnar síðastliðið haust
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum