fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
FókusKynning

Hreinsivörur fyrir bílinn frá a til ö og persónuleg ráðgjöf

Kynning

Adams bílahreinsivörur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 3. maí 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er mikill bíladellukall og vil hafa bílana mína hreina og fína. Ég var alltaf að leita að virkilega góðum hreinsiefnum sem væru auðveld í notkun og var ekki nógu ánægður með efnin sem voru til hérna heima. Svo dett ég inn á þessa síðu á netinu þar sem menn eru að tala um þessar vörur og héldu ekki vatni yfir þeim. Ég hafði samband við Adam’s af því mig langaði í allt í línunni og spurði þá hreinlega hvort þá vantaði ekki umboðsaðila á Íslandi.“

Þetta segir Hilmar Jakobsen, eigandi fyrirtækisins Adams bílahreinsivörur, en í gegnum það flytur hann inn og selur hreinsiefni frá bandaríska framleiðandanum Adam’s Polishes, en vörurnar eru afar rómaðar meðal bílaáhugafólks sem nýtur þess að hafa bílana sína tandurhreina og glansandi að innan sem utan.

„Þeir sem vilja halda bílunum sínum hreinum og fínum finna rosalegan mun þegar þeir fara að nota þessi efni. Bíllinn verður til dæmis ekki lengur skýjaður eftir bónun, auk þess sem það eru til rosalega fín efni til að setja á rúður og virka vel undir þurrkunum. Ég þurfti til dæmis bara að setja rúðupiss tvisvar á bílinn minn í vetur,“ segir Hilmar, en hann býður auk annars heppilega lausn fyrir bílaþvottinn að utan:

„Margir fara með bílana sína á þvottaplan og þvo þá með kústum. Það rispar lakkið á bílnum. Ég sel fötu með tveimur svömpum og sjampói og handklæði. Þetta er svona grunnpakki. Þetta notarðu til að þvo bílinn þinn. Það er drullugrind í botninum á fötunni þannig að drullan leitar ekki í vatnið.“

Í Adam’s-línunni eru líka öll efni til að bóna bílinn, þrífa að innan, jafnt leður sem tauáklæði, og frábær hreinsiefni á rúðugler. Hilmar hefur farið þá leið að selja vörurnar í einkasölu en ekki setja þær á bensínstöðvar eða í aðrar verslanir, vegna þess að ráðgjöfin er mikilvæg:

„Þegar þú kaupir þessar flottu vörur vil ég geta sagt þér hvernig á að nota þær. Ekki að þú farir bara út í búð og takir eitthvað úr hillunni sem þú veist ekki alveg hvernig þú átt að nota. Hérna færðu persónulega ráðgjöf. Hvað vantar þig, hvað viltu gera – þá er það þetta efni sem ég tel að þú eigir að nota – og þú notar það svona.“

Viðskiptavinir geta síðan alltaf haft samband við Hilmar ef þá vantar frekari ráð eða ef þeir lenda í einhverjum vandræðum. Hann segir að margir vanmeti gildi þess að halda bílum sínum eins hreinum og fínum og kostur er:

„Bílar eru dýr fjárfesting og fólk er oft að umgangast þá bara eins og skítuga skó. Það þarf að vanda til verka við halda bílnum hreinum og fínum og ég er með lausnirnar til þess sem bæði virka vel og eru þægilegar.“

Þess má geta að á heimasíðu framleiðandans, www.adamspolishes.com, er að finna afbragðsgóð og skemmtileg kennslumyndbönd sem sýna notkun þess sem í boði er. Meðal margra spennandi nýjunga er H20 Guard and Gloss sem í senn verndar lakkið fyrir skemmdum og gefur því frábæran gljáa.

Fyrir þá sem vilja fá nánari upplýsingar um vörurnar eða kaupa þær er gott að hafa samband í einkaskilaboðum á Facebook-síðunni Adams bílahreinsivörur eða með því að hringja í Hilmar í síma 699-3315.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum