30 ára dóm fékk belgíska konan Els Clottemans í október 2010. Els var sakfelld fyrir að hafa, 18. nóvember 2006, í afbrýðisemi unnið skemmdarverk á fallhlíf vinkonu sinnar, Els Van Doren, með þeim afleiðingum að hún hrapaði til bana. Els Van Doren var 38 ára, gift og tveggja barna móðir. Það kom þó ekki í veg fyrir að hún stæði í kynferðislegu sambandi við fallhlífarstökkvara að nafni Marcel Somers. Slíkt hið sama gerði Clottemans og vildi hún ekki deila Marcel með nöfnu sinni Van Doren. Því fór sem fór.
3 fjölskyldumeðlimir Erin Caffey voru skotmörk tveggja ungra manna sem réðust inn á heimili Caffey-fjölskyldunnar í Alba í Texas 1. mars 2008. Móðir Erin, Penny Caffey, og tveir bræður Erin, Matthew, 13 ára, og Tyler, 8 ára, voru skotin til bana, en fjölskylduföðurnum, Terry Caffey, tókst illan særðum að klifra út um baðherbergisgluggann. Erin hafði lagt á ráðin um morðin og fengið félaga sína til að framkvæma þau. Hún fékk tvöfaldan lífstíðardóm og 25 ár að auki.