Það er alveg ljóst að stuðningsmenn Chelsea vilja ekki selja Conor Gallagher og sýndu þeir það í leik liðsins gegn Tottenham á Stamford Bridge í kvöld.
Samningur Gallagher rennur út eftir næstu leiktíð og hafa verið háværir orðrómar á kreiki um að Chelsea selji hann í sumar til að styrkja stöðu sína gagnvart fjárhagsreglum.
Það vilja stuðningsmenn hins vegar margir hverjir ekki sjá.
„Chelsea frá fæðingu,“ stóð á borða við mynd af Gallagher á leiknum í kvöld, en kappinn er uppalinn hjá Chelsea.
Hér að neðan má sjá þetta.
🔵🏴 “Chelsea since birth”, #CFC fans send clear message with banner for Conor Gallagher at Stamford Bridge tonight. pic.twitter.com/yqM5Ifak0m
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 2, 2024