Það er fast skotið hjá Vinstri grænum og Samfylkingu í átt að Sósíalistum þessa dagana. Það mátti greinilega finna í taugaveikluðum skotum fulltrúa flokkanna að Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Sósíalista, á borgarstjórnarfundi í vikunni fyrir að fara í samstarf með Sjálfstæðisflokknum við skipun í nefndir. Talar Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um „svonefnda sósíalista“ vegna samstarfsins um að raða niður í nefndir. Það mætti halda að hvorki VG né Samfylkingin hafi setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.