fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Fjölskylda konu sem lést í hundaárás vill réttlæti – „Af hverju er verið að koma í veg fyrir að þessir hundar séu drepnir?“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 2. apríl 2026 22:00

Lakesha barðist fyrir lífi sínu í þrjár vikur. Myndir/GoFundMe

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir hundar réðust á og tættu í sundur þriggja barna móður í Mississippi. Fjölskylda hennar krefst þess að hundarnir verði svæfðir og skilur ekki hvers vegna það hefur ekki verið gert.

Greint er frá málinu í tímaritinu People.

Konan, Lakesha Newsom, varð fyrir árás fjögurra hunda þann 3. mars og lést af áverkum sínum á föstudag, þann 27. mars. Eigandi hundanna, kona að nafni Sandra Harris, hefur verið handtekin í tengslum við málið en hundarnir eru enn á lífi.

„Hún barðist eins og hún gat. Fjölskylda okkar er sundurbrotin,“ segir DeWayla Young, systir Lakeshu, í færslu á síðunni GoFundMe þar sem safnað er fyrir fjölskylduna. En Lakesha skilur eftir sig þrjú ung börn, 13 ára og 11 ára tvíbura.

Að sögn Jerlene Tyson, frænku Lakeshu, þá var árásin sérstaklega hrottaleg. Hundarnir tættu hana í sig og hún lá í blóði sínu klukkutímum saman áður en hjálp barst. Farið var með hana strax á spítala en þar þurfti að fjarlægja hægri handlegg og hægri fótlegg.

Vildu drepa hana

Lakesha var með meðvitund á spítalanum og gat veitt útvarpsstöðinni WREG viðtal.

„Ég vill að sá sem á þessa hunda verði dreginn til ábyrgðar fyrir þetta,“ sagði Lakesha í viðtalinu.

Fjarlægja þurfti hægri handlegg og fótlegg. Mynd/GoFundMe

Var hún á sterkum skammti verkjalyfja en var samt sárkvalin. Þá þurfti hún að anda í gegnum öndunarvél. Hún var einnig með miklar sýkingar eftir hundana.

„Á einum tímapunkti hættu þeir að ráðast á mig,“ sagði Lakesha. „Þeir hafa ábyggilega haldið ég væri dáin. Ég var að reyna að staulast á fætur til að komast í burtu frá þeim en þegar þeir tóku eftir því réðust þeir aftur á mig. Ég veit að þessir hundar voru að reyna að drepa mig. Ég barðist eins og ég gat við þá. Ég sagði: Guð nei, ég skal lifa þetta af.“

Hún var með stóra skurði í andlitinu og úr sumum blæddi stanslaust.

„Ég vona að ég nái fullum bata og ég vona að enginn annar þurfi að ganga í gegnum þetta,“ sagði Lakesha.

En því miður raungerðist það ekki og sár hennar drógu hana að lokum til dauða á Regional One Health sjúkrahúsinu í Mempis í Tennessee. Fjölskyldan er í algjöru losti yfir þessu.

Ákærð fyrir líkamsárás og vanrækslu

„Við erum enn þá að reyna að finna orðin til að skilja þetta,“ sagði Rosie Young, móðir Lakeshu. „Að hundarnir séu enn þá á lífi. Hversu sanngjarnt er það? Af hverju er verið að koma í veg fyrir að þessir hundar séu drepnir? Við misstum Keshu.“

Áðurnefnd Sandra Harris, 54 ára, var handtekin mánudaginn 23. mars en hundarnir eru í hennar eigu. Að sögn lögreglunnar í Holly Springs hefur Harris verið ákærð fyrir líkamsárás og alvarlega vanrækslu gagnvar lífi annarar manneskju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn