fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Vestmannaeyingur ógnaði lögreglumanni með hnífi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 16:30

Frá Vestmannaeyjum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vestmannaeyingur á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni sem framið var mánudaginnn 14. febrúar árið 2025.

Brotið átti sér stað í stigagangi í húsi í Vestmannaeyjum. Þar er ákærði sagður hafa ógnað lögreglumanni með hnífi og hótað honum lífláti.

Hann er síðan einnig sagður hafa hótað þessum lögreglumanni á lögreglustöðunni í Vestmannaeyjum, sem og öðrum lögreglumanni er þar var einnig við skyldustörf.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Suðurlands þann 12. mars, í dómsal  að Heiðarvegi 15 í Vestmannaeyjum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti