fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Færri flytja til Íslands

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2026 11:37

Féð fannst á manninum þegar hann var í Leifsstöð á leið úr landi. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Færri fluttu frá Íslandi en til þess á síðasta ári en þó fer fækkandi í þessum hópi. Fjöldi aðfluttra umfram brottflutta var meiri árið 2024 og hefur raunar farið jafnt og þétt niður á við síðan árið 2022.

Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Hagstofu Íslands.

Í tilkynningunni segir að árið 2025 fluttust 3.167 fleiri til Íslands en frá landinu. Það séu færri en árið 2024 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 4.044. Flutningsjöfnuður hafi verið mestur árið 2022, þegar 8.660 fleiri hafi flutt til landsins en frá því, en síðan þá hafi jafnt og þétt dregið úr honum.

Samtals fluttust 18.674 manns til Íslands árið 2025 samanborið við 19.789 á árinu 2024. Alls fluttust 15.507 manns frá landinu á síðasta ári borið saman við 15.745 árið 2024, en aldrei hafa fleiri flutt frá landinu á einu ári en það ár.

Fram kemur að ef einungis sé litið til erlendra ríkisborgara hafi flutningsjöfnuður verið 3.512 manns sem sé samdráttur frá fyrra ári þegar flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara hafi verið 4.183. Árið 2022 hafi flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara verið 9.186 og hafi aldrei verið meiri. Flutningsjöfnuður á meðal íslenskra ríkisborgara hafi verið neikvæðue en brottfluttir hafi verið 345 fleiri en aðfluttir árið 2025. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara hafi einnig neikvæður árið 2024 um 139.

Þetta hefur verið þróunin í megindráttum undanfarin ár að fleiri erlendir ríkisborgarar hafa flust til landsins en íslenskir og oft hafa fleiri í síðarnefnda hópnum flutt burt frá landinu en til þess. Sjá má þróunina nánar á þessu línuriti Hagstofunnar.

Leiðin liggur til Danmerkur

Í tilkynningunni segir að af þeim 4.946 íslensku ríkisborgurum sem flutt hafi af landi brott árið 2025 hafi 3.505 flutt til Danmerkur, Svíþjóðar eða Noregs. Flesti hafi flutt til Danmerkur, eða 1.997, en næst flestir til Svíþjóðar eða 1.063. Flestir íslenskir ríkisborgarar sem hafi flust til Íslands á árinu hafi einnig komið frá þessum löndum eða 3.117 af 4.603. Flestir hafi komið frá Danmörku eða 1.502.

Flestir erlendir ríkisborgarar hafi á sama tíma flust til Póllands eða 2.687 af 10.561. Þaðan hafi líka komið flestir erlendir ríkisborgarar á síðasta ári eða 2.798 af 14.073. Næst flestir erlendir ríkisborgarar hafi flust til landsins frá Úkraínu árið 2025 eða 1.131 manns.

Hagstofan segir í tilkynningu sinni að eins og síðustu ár hafi fjölmennasti hópur aðfluttra og brottfluttra  árið 2025 verið á aldrinum 20–29 ára. Rúmleg 37 prósent brottfluttra hafi verið á þessu aldursbili og rúmlega 37 prósent aðfluttra. Af einstökum árgöngum hafi 25 ára einstaklingar verið fjölmennasti hópurinn af brottfluttum, eða 715, sem og fjölmennasti hópurinn af þeim sem fluttust til landsins eða 930.

 

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar