fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. mars 2026 10:18

Vilhjálmur Birgisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar íslenskt fiskvinnslufólk missir vinnuna á sama tíma og tugþúsundir tonna af óunnum fiski eru flutt úr landi til vinnslu í öðrum löndum,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, í pistli á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hann frétt Fiskifrétta um uppsagnir hjá Erik The Red Seafood í Keflavík að umtalsefni, en í viðtali við blaðið í gær sagði eigandi vinnslunnar, Ketill Helgason, að fimmtungi starfsmanna hefði verið sagt upp vegna hráefnisskorts.

Þá sagði hann að á sama tíma sé útflutningur á óunnum fiski að aukst. Hefur Ketill lengi bent á að tryggja þurfi betur að fiskur sé ekki fluttur fyrirvaralaust úr landi í svo stórum stíl.

Störfin send úr landi með hráefninu

Í pistli sínum bendir Vilhjálmur á að á hverju ári séu um 50 þúsund tonnum af óunnum fiski skipað úr landi til vinnslu í Póllandi, Hollandi og Litháen.

„Það þýðir einfaldlega að störfin sem gætu verið hér á Íslandi – störf fyrir íslenskt verkafólk, fjölskyldur og heilu samfélögin – eru send út úr landinu með hráefninu,“ segir Vilhjálmur og er ómyrkur í máli.

„Þetta er algjörlega óásættanlegt. Auðlindirnar í hafinu eru sameign þjóðarinnar. Þær eiga ekki bara að skila arði á pappír eða í arðgreiðslum heldur eiga þær fyrst og fremst að skapa atvinnu, verðmæti og byggðafestu hér heima. Það getur ekki verið eðlilegt að fiskvinnsla á Íslandi standi frammi fyrir uppsögnum á sama tíma og hráefnið er flutt óunnið úr landi til að skapa störf annars staðar. Þegar þjóðin afhendir fyrirtækjum aðgang að einni verðmætustu auðlind landsins er ekki ósanngjarnt að gera þá samfélagslegu kröfu um að verðmætasköpunin og störfin verði líka til hér.“

Vinnsluskyldu þurfi að ræða af alvöru

Vilhjálmur segir að af þessum ástæðum þurfi að ræða vinnsluskyldu af fullri alvöru. Ef fyrirtæki fái að nýta auðlindir þjóðarinnar þá verði líka að fylgja þeirri ábyrgð að skapa störf og verðmæti í landinu.

„Stjórnvöld geta ekki horft upp á það ár eftir ár að hráefnið sé flutt óunnið úr landi á meðan fólk hér missir vinnuna. Það þarf að bregðast við og það þarf að gera það af festu. Auðlindir þjóðarinnar eiga að tryggja fólkinu í landinu atvinnu og framtíð – ekki að vera hráefnisbirgðir fyrir vinnslur í öðrum löndum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ferðafólk lenti á kafi í vatni á Snæfellsnesi

Ferðafólk lenti á kafi í vatni á Snæfellsnesi