

Síminn hf. og Sýn hf. hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.
Í tilkynningu segir að í skilmálaskjalinu sé fjallað um helstu forsendur viðskiptanna og gert er ráð fyrir að heildarvirði (e. enterprise value) einingarinnar sé 5.250 milljónir króna og tekjur nemi um 3.000 milljónum króna á ársgrundvelli. Aðilar skuldbinda sig samkvæmt skilmálaskjalinu til þess að vinna að því að undirrita kaupsamning á grundvelli þeirra skilmála sem fram koma í skilmálaskjalinu. Viðskiptin eru háð niðurstöðum áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórnar beggja aðila og samþykki viðeigandi eftirlitsaðila.
Haft er eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans, í tilkynningu:
„Vef- og útvarpsmiðlar Sýnar hafa fest sig í sessi sem ómissandi veita frétta og afþreyingar hjá meirihluta landsmanna. Öflugur mannauður og sterk vörumerki miðlanna falla vel að okkar starfsemi, og við trúum því að sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum, verði í góðri stöðu til að veita framúrskarandi fjölmiðlaþjónustu í síbreytilegu umhverfi. Með einstaklega vel heppnaðri yfirtöku á Billboard, markvissri uppbyggingu Sjónvarp Símans Premium, og hraðri framþróun auglýsingatækni innan Símans, höfum við mótað traustan grunn til að byggja upp eininguna með góðum árangri.“