fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært Guðmund Elís Sigurvinsson fyrir að hafa vorið 2023 farið með 15 ára stúlku um borð í skipið Grímsnes GK-555 í Vestmannaeyjum.

Er Guðmundur Elís ákærður fyrir sifskapar- og barnaverndarlagabrot.

Lýst hafði verið eftir stúlkunni og hafði lögregla leitað að henni í Vestmannaeyjum. Síðan kom í ljós að hún var um borð í skipinu og var því þá snúið við. Var hún um borð í skipinu í 12 klukkustundir. Í ákæru yfir honum segir að hann hafi stuðlað að því að stúlkan kæmi sér undan umsjá foreldra sinna. Hann hafi stofnað heilsu og lífi stúlkunnar í alvarlega hættu án vitneskju og heimildar foreldra hennar.

Dæmdur fyrir hrottalegt ofbeldi

Guðmundur Elís hefur áður verið dæmdur fyrir hrottalegt ofbeldi í nánu sambandi. Í september 2020 var viðtal í Kastljósi við Kamillu Ívarsdóttur, fyrrum kærustu Guðmundar Elís, þar sem hún sagði frá grófu ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu hans. Með henni í viðtalinu var móðir hennar Helga Sæunn Árnadóttir, sem sagði sögu sína í forsíðuviðtali Vikunnar í byrjun árs 2021.

Í dómi sem Guðmundur Elís hlaut í mars 2020 eru fjögur ofbeldisbrot hans tiltekin gegn Kamillu sem og annarri fyrrverandi kærustu sem jafnframt er barnsmóðir Guðmundar, og var hann sakfelldur fyrir þau öll.

Málið gegn Guðmundi Elís verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 17. mars næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Í gær

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision
Fréttir
Í gær

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“
Fréttir
Í gær

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina