fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Stefán Vagn nýr þingflokksformaður Framsóknar

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. mars 2026 14:37

Stefán Vagn hefur setið á þingi síðan árið 2021. Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Tillaga um þetta var var samþykkt á þingflokksfundi Framsóknar í Smiðju í dag, þann 11. mars 2026.

Stefán Vagn er oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi og hefur setið á Alþingi frá árinu 2021. Hann var kjörinn varaformaður flokksins á flokksþingi þann 15. febrúar.

„Ég þakka traustið sem þingflokkur Framsóknar sýnir mér. Fram undan eru krefjandi tímar í þinginu þar sem mörg stór mál bíða afgreiðslu og má þar einna helst nefna aðildarumsókn íslands að Evrópusambandinu, samgönguáætlun og fjármálaáætlun.

Á sama tíma og þingflokkurinn mun leggja sig allan fram við að styðja við sveitarstjórnarfulltrúa og framboð Framsóknar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég vil einnig þakka Ingibjörgu Isaksen fyrir sína vinnu síðustu ár í embætti þingflokksformanns Framsóknar,” segir Stefán Vagn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Tanja gerir upp tímabil Öfga – „Öfgar áttu ekkert að vera einhver svona nafngreiningarmaskína“

Tanja gerir upp tímabil Öfga – „Öfgar áttu ekkert að vera einhver svona nafngreiningarmaskína“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Í gær

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi
Fréttir
Í gær

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur