

Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimildarinnar, skýtur föstum skotum á fjölmiðlamanninn Stefán Einar Stefánsson sem og Miðflokkinn í færslu sem hann birtir á Facebook. Vísar hann þar til þess að Stefán Einar hefur kvartað undan því að forsætisráðherra hafi virt að vettugi boð hans um að mæta til viðtals í þáttinn hans, Spursmál.
„Flokksbundni þáttarstjórnandinn Stefán Einar Stefánsson, sem gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður eða hlutlaus blaðamaður, er skráður í Sjálfstæðisflokkinn og niðurgreiddur af útgerðarfélögum, gerir kröfu á ráðherra um að mæta í þáttinn hans á fjölmiðlinum sem var keyptur af hagsmunaaðilum til þess að hafa áhrif á skoðanir almennings á Evrópusambandsaðild og fiskveiðistjórnunarmálum. Fjölmiðli sem er niðurgreiddur um milljón á dag af sömu aðilum í taprekstri sem hefði knúið fram breytingar á öllum öðrum tegundum reksturs.“
Næst beindi framkvæmdastjórinn spjótum sínum að Miðflokknum, en forystumenn hans hafi ekki svarað spurningum Heimildarinnar í tengslum við fréttaflutning í nýjasta tölublaði miðilsins um tengsl flokksins við erlenda aðila.
„Á sama tíma svara forystumenn Miðflokksins ekki eðlilegum og nauðsynlegum spurningum Heimildarinnar um samskipti, samstarf og tengsl við erlenda aðila sem hafa sögu um, hlutverk og yfirlýstan vilja til að hafa áhrif á kosningar í Evrópuríkjum. Formaðurinn þverneitar síðan fyrir efni umfjöllunarinnar, að henni ólesinni, í þætti á RÚV.“
Jón Trausti tekur fram að stjórnmálamenn eigi að sjálfsögðu að svara fjölmiðlum. Á sama tíma sé það þó ekki sjálfgefið að þeir samþykki boð um að mæta til yfirheyrslu hjá pólitískum andstæðingum.
„Auðvitað eiga stjórnmálamenn að svara fjölmiðlum, en það er ekki eins sjálfgefið að þeir mæti í yfirheyrslur hjá flokksbundnum pólitískum andstæðingum. Stefán Einar ætti að segja opinberlega skilið við Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið ætti strax að hætta að þiggja niðurgreiðslur útgerðarinnar til þess að skapa traust í opinberri umræðu.“