fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Kallar eftir formlegri rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri – „Þegar mannslíf tapast er rannsókn ekki valkostur heldur skylda“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. febrúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sóley Eiríksdóttir, sem naumlega komst lífs af þegar snjóflóðið á Flateyri árið 1995, hefur lagt fram formlegt erindi til Alþingis þar sem óskað er eftir sjálfstæðri og heildstæðri rannsókn á snjóflóðinu. Þetta kemur fram í aðsendri grein Sóleyjar á Vísi en þar segir hún það skjóta skökku við að hefja slíka rannsókn vegna snjóflóðsins á Súðavík, sem féll sama ár við sambærilegar aðstæður og með sambærilegum afleiðingum, en sleppa því að rannsaka hamfarirnar á Flateyri.

„Helstu rök sem nefnd hafa verið eru þau að aðstandendur hafi ekki kallað formlega eftir rannsókn.

Rannsókn á náttúruhamförum er ekki einkamál aðstandenda. Hún er hluti af ábyrgð ríkisins gagnvart borgurum sínum. Hún snýst um hvernig hættumat var unnið, hvernig ákvarðanir voru teknar og hvort fyrirliggjandi þekking var nýtt. Slík rýni á að byggjast á eðli atburðarins og afleiðingum hans, ekki á því hvort þolendur hafi burði eða þrek til að halda málinu lifandi í áratugi.

Ef rannsókn er réttlætanleg í Súðavík vegna manntjóns og samfélagslegra afleiðinga, hlýtur sami mælikvarði að gilda um Flateyri. Annað kallar á skýran og rökstuddan mun,“ skrifar Sóley.

Snjóflóðið á Súðavík féll þann 16. janúar 1995 og kostaði líf fjórtán íbúa. Snjóflóðið á Flateyri félll þann 26. október sama ár en tuttugu íbúar létust í flóðinu. Ein þeirra sem lést var systir Sóleyjar en sjálf lenti hún undir flóðinu en var grafin upp í tæka tíð.

„Sú reynsla veitir mér ekki sérstakan rétt umfram aðra, en hún undirstrikar hvers vegna ábyrgð ríkisins má ekki ráðast af því hvort þolendur knýi á um rannsókn eða ekki. Ríkið ber ábyrgð á að rannsaka atburði sem kostuðu mannslíf. Sú ábyrgð má ekki vera valkvæð. Þegar mannslíf tapast er rannsókn ekki valkostur heldur skylda. Ef sami mælikvarði á að gilda um alla verður hann að gilda um Flateyri líka,“ skrifar Sóley.

Grein hennar má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum
Fréttir
Í gær

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri
Fréttir
Í gær

Dagur segir Miðflokkinn taka stöðu gegn almenningi – „Vaxtagreiðslur eru ótrúlega stór hluti af útgjöldum húseigenda“

Dagur segir Miðflokkinn taka stöðu gegn almenningi – „Vaxtagreiðslur eru ótrúlega stór hluti af útgjöldum húseigenda“
Fréttir
Í gær

Þarf að bera vitni með meintan kvalara sinn í dómsalnum – „Þú fucking þorir ekki að svara“

Þarf að bera vitni með meintan kvalara sinn í dómsalnum – „Þú fucking þorir ekki að svara“