
Innviðaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Samgöngustofu um að vísa frá kæru fjögurra einstaklinga sem vísað var úr flugvél flugfélagsins Play sem var í þann mund að leggja af stað frá Danmörku til Íslands. Var það ágreiningur um nýtingu flugsæta tveggja einstaklinga sem ætluðu með fjórmenningunum í flugið sem orsakaði ágreining milli þeirra og áhafnar vélarinnar.
Kæran barst ráðuneytinu í október 2024 en Samgöngustofa sendi sína ákvörðun frá sér í september 2024. Á meðan kæran var til meðferðar í ráðuneytinu hætti Play starfsemi og var tekið til gjaldþrotaskipta.
Höfðu hinir ónefndu fjórir einstaklingar ásamt tveimur öðrum átt bókað far í flugi Play frá Danmörku til Íslands. Hinir síðarnefndu tveir forfölluðust en hinir fjórir ætluðu sér hins vegar að nota öll sex sætin á meðan fluginu stæði. Þegar um borð var komið kom hins vegar upp úr krafsinu að áhöfn vélarinnar ætlaði sér að ráðstafa sætunum tveimur til annarra farþega. Einn fjórmenninganna átti þá í orðaskiptum við áhöfnina sem enduðu með því að honum var vísað úr flugvélinni og svo fór að hinir þrír fylgdu í kjölfarið.
Fjórmenningarnar kærðu brottvísunina til Samgöngustofu í lok ágúst 2024 og kröfðust þess að ákvörðun Play yrði úrskurðuð ólögmæt og þeim greiddar bætur. Samgöngustofa vísaði kærunni hins vegar frá á þeim grundvelli að kæran félli ekki undir þau lög eða reglugerðir sem stofnunin starfi eftir og þá niðurstöðu kærður fjórmenningarnar til ráðuneytisins.
Fjórmenningarnar andmæltu meðal annars í kærunni þeirri niðurstöðu Samgöngustofu að atvikið heyrði ekki undir ákvæði loftferðalaga og þar með gæti stofnunin ekki úrskurðað í málinu. Þeir andmæltu líka þeirri niðurstöðu stofnunarinnar að sömuleiðis væri á grundvelli loftferðalaga væri ekki mögulegt fyrir stofnunina að taka afstöðu til bótakröfunnar.
Vísuðu þeir einnig til þess að Play hefði brotið á mannréttindum þeirra og vísuðu þar sérstaklega til til 71. greinar stjórnarskrárinnar um persónu- og æruvernd, svo og fjölskyldufriðhelgi og ákvæða stjórnarskrárinnar um persónu- og ferðafrelsi.
Samgöngustofa sagði hins vegar í sínum andsvörum að ákvæði laganna um brottvísun úr flugfari afmarkist við flug frá Íslandi en þar sem flugið hafi verið frá Danmörku til Íslands hefði hún ekki vald til að úrskurða í málinu. Evrópureglugerð innihéldi sams konar ákvæði. Reglugerðin heimili að taka kvartanir frá öðrum ríkjum til meðferðar en skyldi stofnunina ekki til þess. Þar sem fjórmenningunum hefði verið vísað frá borði í Danmörku væri eðlilegast að meðferð málsins færi fram þar.
Gerðu fjórmennigarnir ítarlegar athugasemdir við túlkun Samgöngustofu á áðurnefndum lögum og reglugerðum. Vildu þeir einnig meina að úr því að Samgöngustofa teldi að vísa ætti málinu til Danmerkur hefði stofnunin átt að framsenda málið til þar tilbærs stjórnvalds þar í landi og sjá til þess að öll málsgögn yrðu þýdd yfir á dönsku.
Í niðurstöðu innviðaráðuneytisins er tekið undir með Samgöngustofu um að ákvæði loftferðalaga um brottvísanir úr loftförum eigi bara við um flug frá íslensku yfirráðasvæði og það sami gildi um Evrópureglugerðina. Stofnunin hafi því ekki vald til að úrskurða í málinu.
Ráðuneytið segir hins vegar að Samgöngustofa hafi átt að sinna leiðbeiningarskyldu sinni og benda fjórmenningunum á að leita réttar síns í Danmörku en það hafi ekkert verið minnst á það í ákvörðun stofnunarinnar í september 2024. Telur ráðuneytið hins vegar að þessari skyldu hafi stofnunin á endanum sinnt með því að benda á þetta í andsvörum sínum við kærunni.
Telur ráðuneytið því að Samgöngustofu hafi verið rétt að vísa frá kærunni og bótakröfunni.
Það tók ráðuneytið eitt ár og þrjá mánuði að úrskurða í málinu og biðst það að lokum velvirðingar á því og vísar til þess að það hafi dregist vegna mikilla anna en eins og flestir lesendur ættu að vita þá hætti Play starfsemi á meðan málið var til meðferðar í ráðuneytinu, en það var í september 2025.