fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Fréttir

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 27. febrúar 2026 14:00

Jelly Boy var látinn dúsa í fangaklefa í fimm tíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn af frægustu trúðum heims var settur í járn á Keflavíkurflugvelli á miðvikudag og missti af fluginu sínu til Bandaríkjanna. Landamæraverðirnir héldu að sviðsbúnaðurinn hans væri sprengja.

Hildarleikur á Íslandi

Trúðurinn, Eric Broomfield að nafni en kallaður Jelly Boy the Clown, greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum. En hann er nú kominn til New York eftir mikinn hildarleik á Íslandi sem olli því að hann missti af flugi og sýningum ytra.

Greinir frá því að fyrst hafi flug hans til New York verið fellt niður vegna óveðurs. Þá hafi hann pantað flug til Baltimore en verið handtekinn á Keflavíkurflugvelli.

„Þegar ég var sestur í flugvélina og var að koma mér vel fyrir komu þrír lögreglumenn inn í vélina og stefndu í áttina að mér,“ segir Eric í færslunni. „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim. Þeir settu mig í járn og inn í lögreglubíl.“

Sögðu vélina heimagerða sprengju

Sögðu lögreglumennirnir að hann hefði farið með heimagerða sprengju inn í flugvélina. Hið rétta var að þetta var alls ekki sprengja heldur „eldingargerðarvél“ (e. Tesla coil). Kom honum þetta mjög á óvart enda hafði hann flogið með maskínuna út um allan heim. Meðal annars til og frá Íslandi.

„Ég sagði þeim að ég væri skemmtikraftur og að tækið í farangri mínum væri sviðshlutur,“ segir Eric. Benti hann lögreglumönnunum á að gúggla nafnið Jelly Boy the Clown. Þá gætu þeir meðal annars séð hann nota téða maskínu í myndbandi úr þættinum fræga „America´s Got Talent.“

Lögreglumennirnir voru ekki alveg að kaupa þessa sögu hans strax. Mátti trúðurinn því dúsa í fangaklefa í um það bil fimm klukkutíma á meðan þessi saga hans var staðreynd. Loks sannfærðust þeir um það og hleyptu honum út. En skaðinn var skeður.

Leitar réttar síns

„Ég var búinn að missa af fluginu mínu þegar lögreglan sleppti mér. Ég fékk eldingargerðarvélina mína en það var búið að klippa á alla vírana og aftengja þá vélinni,“ segir Eric. „Sem betur fer komst ég um borð í aðra flugvél til New York daginn eftir og lenti í gær. Ég er búinn að eyða tveimur síðustu dögum að laga vélina og hún virkar núna aftur.“

Málinu er hins vegar ekki lokið. Eric er núna að leita að lögmanni til þess að kanna stöðu sína varðandi bætur fyrir þessa handtöku, skemmdir og missis atvinnutækifæra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lilja kemur kaþólsku kirkjunni til varnar – „Samkynhneigða á að meðhöndla með virðingu, samúð og næmni, og er kallað eftir skírlífi“

Lilja kemur kaþólsku kirkjunni til varnar – „Samkynhneigða á að meðhöndla með virðingu, samúð og næmni, og er kallað eftir skírlífi“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Reykjavíkurborg óskar eftir þátttöku íbúa: „Við viljum læra meira um hvernig þú lítur á borgina“

Reykjavíkurborg óskar eftir þátttöku íbúa: „Við viljum læra meira um hvernig þú lítur á borgina“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sakar MAST um valdníðslu og ofbeldi eftir að hafa verið sviptur 4 hundum: „Mæta á svæðið með skætingi og stælum“

Sakar MAST um valdníðslu og ofbeldi eftir að hafa verið sviptur 4 hundum: „Mæta á svæðið með skætingi og stælum“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Segir að Bandaríkjamenn hafi gert stór mistök í gær

Segir að Bandaríkjamenn hafi gert stór mistök í gær
Fréttir
Í gær

Áætlun um vopnaða uppreisn í Íran sögð í vinnslu

Áætlun um vopnaða uppreisn í Íran sögð í vinnslu
Fréttir
Í gær

Fyrrverandi hershöfðingi hjá NATO óttast að við séum að verða vitni að upphafi þriðju heimsstyrjaldarinnar

Fyrrverandi hershöfðingi hjá NATO óttast að við séum að verða vitni að upphafi þriðju heimsstyrjaldarinnar